Segja að EM kvenna verði líka fært aftur um eitt ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2020 13:35 Sara Björk Gunnarsdóttir og íslensku stelpurnar þurfa að bíða í eitt ár í viðbót takist þeim að tryggja sig inn á EM í Englandi. vísir/vilhelm
EM karla í fótbolta 2020 breyttist í EM 2021 á fundi UEFA í morgun en nú lítur út fyrir það að EM kvenna verði líka seinkað um eitt ár. Fyrstu fréttir í morgun voru um að EM karla eigi að fara fram frá 11. júní til 11. júlí á næsta ári en Evrópumót kvenna átti síðan að hefjast 11. júní. Það er hins vegar mikið mál að halda eitt Evrópumót hvað þá tvö sama sumar. Knattspyrnusamband Evrópu ætlar því að færa kvennamótið vegna þess að karlamótið var fært frá 2020 til 2021 vegna kórónuveirunnar. Även damernas mästerskap kommer att flyttas #fotboll https://t.co/W7y4TqtDaE— SVT Sport (@SVTSport) March 17, 2020 Nú lítur út fyrir að EM kvenna fari ekki fram fyrr en sumarið 2022 en sænska blaðið Expressen og SVT hafa heimildir fyrir þessu. UEFA ætlar líka að seinka Evrópumóti 21 árs landsliða sem átti líka að fara fram árið 2021. Evrópumót kvenna fer fram í Englandi og er búist við miklum áhuga á því í kjölfarið á mjög vel heppnuðu heimsmeistaramóti á síðasta ári. Íslenska kvennalandsliðið er í góðri stöðu í sínum riðli í undankeppninni en liðið hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína með markatölunni 11-1. Íslenska liðið á hins vegar eftir að spila fimm leiki á þessu ári og áttu fjórir þeirra að fara fram frá apríl til júní.
EM 2021 í Englandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir EM verður haldið á næsta ári Evrópumót karla í fótbolta verður haldið á næsta ári. 17. mars 2020 12:35 Mest lesið HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ Fótbolti „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Fótbolti Fleiri fréttir Gerði óþekktan leikmann heimsfrægan Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Flugu með Herðubreið á HM Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Arnar sendir pillu á FIFA Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Suárez fær ekki að vera með á HM Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Sjá meira
EM verður haldið á næsta ári Evrópumót karla í fótbolta verður haldið á næsta ári. 17. mars 2020 12:35
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings