Viðskipti innlent

Icelandair rýkur upp eftir 65 prósenta fall

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Það má vænta þess að ferðabönn Bandaríkjanna og ESB muni hafa mikil áhrif á afkomu Icelandair Group.
Það má vænta þess að ferðabönn Bandaríkjanna og ESB muni hafa mikil áhrif á afkomu Icelandair Group. Vísir/vilhelm

Á sama tíma og virði hlutabréfa í Icelandair hafa hækkað um næstum 14 prósent eru húrrandi lækkanir annars staðar í Kauphöllinni í dag. Þannig hefur gengi hlutabréfa í Arion banka, Fasteignafélögunum Eik og Reitum fallið um 7 til 8 prósent og um fjögurra prósenta lækkun hefur orðið á virði bréfa í Eimskipum, Símanum, Sýn og tryggingafélaginu VÍS. Úrvalsvísitalan hefur alls lækkað um liðlega 2,4 prósent það sem af er degi.

Samtímis hefur gengi krónunar styrkst lítillega, eftir hrap síðustu daga. Lækkunin hefur alls num um 10 prósentum frá áramótum. Mest hefur krónan styrkst gagnvart pundi og norsku krónunni í dag, um næstum 2 prósent, en um tæplega 1 prósent gagnvart öðrum helstu viðskiptamyntum.

Hækkun Icelandair í dag kemur í kjölfar kröfugrar lækkunar síðastliðinn mánuð. Hvert ríkið á fætur öðru hefur innleitt ferðatakmarkanir eða lokað landamærum sínum, sem skiljanlega hefur áhrif á rekstur flugfélags. Er nú svo komið að virði bréfa í félaginu er 3,4 og hefur þannig lækkað um rúm 65 prósent á einum mánuði.

Áður en til kórónuveirunnar kom virtist Icelandair vera að rétta úr kútnum. Flutningstölur báru með sér að farþegum félagsins færi fjölgandi, þrátt fyrir kyrrsetningu Boeing MAX-vélanna sem staðið hefur yfir í rétt rúmt ár. Þegar fór að kræla á kórónuveirunni brást Icelandair við með aflýsingu flugferða, fyrst voru 80 ferðir felldar niður en tekið fram að horft væri til þess að aflýsa fleiri ferðum. Steininn tók hins vegar úr þegar Bandaríkjastjórn tók fyrir flug til landsins og líklegt verður að teljast að sambærileg ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sé ekki til þess fallin að fjölga ferðum Icelandair til Evrópu næstu vikurnar.


Tengdar fréttir

Seðlabankinn dælir 60 milljörðum inn í bankana

Seðlabankinn dældi 60 milljörðum inn í bankakerfið í dag með afnámi sveiflujöfnunarauka viðskiptabankanna. Skilaboðin til þeirra um halda áfram útlánum til fyrirtækja og heimila eru skýr og að bankarnir greiði eigendum sínum engan arð á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×