Miklar líkur á að ferðamaðurinn hafi látist af völdum COVID-19 Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. mars 2020 14:12 Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, og Alma Möller, landlæknir, á upplýsingafundinum í dag. Vísir/Vilhelm
Miklar líkur eru taldar á því að ástralski ferðamaðurinn sem lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík á mánudag hafi látist af völdum sjúkdómsins COVID-19. Þetta sagði Alma D. Möller, landlæknir, á upplýsingafundi nú rétt í þessu. Alma sagði að krufning hefði farið fram í gærkvöldi. Endanleg skýrsla liggi ekki fyrir þar sem það tekur lengri tíma að staðfesta dánarorsök en henni væri þó heimilt, í samráði við aðstandendur mannsins og þá sem framkvæmdu krufninguna, að segja frá því að í ljós hafi komið lungnabólga. „Þannig að það eru miklar líkur á því að maðurinn hafi látist úr COVID-19,“ sagði Alma en bætti við að hann hefði ekki verið með dæmigerð einkenni sjúkdómsins. Maðurinn, sem var um fertugt og frá Ástralíu, var á ferðalagi hér á landi ásamt eiginkonu sinni. Hann kom á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík á mánudag og var þá alvarlega veikur. Hann lést skömmu eftir komuna á sjúkrahús. Maðurinn reyndist smitaður af kórónuveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum en var, eins og áður segir, ekki með dæmigerð einkenni sjúkdómsins. Ekki hefur komið fram hvaða einkenni maðurinn var með. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Norðurþing Heilbrigðismál Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira