Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Birgir Olgeirsson skrifar 23. október 2026 16:12 Rauði klukkuturninn fær aftur stað við mathöllina á Hlemmi. Hönnun klukkuverksins stendur enn yfir. Reykjavík Klukkuturninn sem áður stóð við strætóbiðstöðina á Hlemmi verður settur upp á ný. Við mathöllina verður aðstaða fyrir töskugeymslu og Norðurpólnum verður að hluta sökkt niður til að bæta aðgengi.
Þetta kemur fram í nýrri kynningu á framkvæmdum og hönnun Hlemms sem lögð var fyrir umhverfis- og skipulagsráð á miðvikudag. Reykjavíkurborg hefur nú birt myndir af fyrirhuguðu útliti svæðisins. Klukkuverkið enn í hönnun Verkhönnun vesturhluta Hlemms er lokið og útboðsgögn eru í vinnslu. Þar er meðal annars gert ráð fyrir endurkomu klukkuturnsins, en hönnun klukkuverksins er enn ólokið verkefni. Aðstaða fyrir sorp mathallarinnar verður bætt og komið fyrir töskugeymslu. Þá verður gróðri og setaðstöðu komið fyrir við húsið. Norðurpóll lækkaður til að komast hjá römpum Nánari útfærsla á svæðinu við Norðurpól felur í sér að húsinu verður að hluta sökkt niður. Þannig á að uppfylla aðgengiskröfur og komast hjá óþörfum römpum á torginu. Fyrir framan húsið verður aðstaða fyrir útiveitingar. Norðurpóll er fyrir miðju, sviðsgrind vinstra megin og leikhöllin hægra megin. Fyrir framan húsið verður rými fyrir útiveitingar.Reykjavík Leikhöllin verður austan við Norðurpól. Grunnurinn er kominn og leiktækin eru á leið til landsins. Inni í stálgrindinni verða meðal annars gular rennibrautir og leiksvæði fyrir yngstu börnin á jarðhæð. Grindverk verður milli leikhallar og Norðurpóls til að gæta öryggis barna, enda mun Borgarlínan liggja meðfram byggingunum. Leikhöllin verður með gulum leiktækjum og rennibrautum innan stálgrindar. Möskvanet verður í römmunum utan um leiksvæðið. Áætlað er að framkvæmdum við rýmið umhverfis leikhöllina og við Þverholt ljúki fyrir komandi áramót, samkvæmt kynningunni. Tölvugerð yfirlitsmynd sýnir fjölmenni á torginu. Stór hópur stendur framan við bláu sviðsgrindina, leikhöllin er vinstra megin og mathöllin hægra megin.Reykjavík Á torginu verður einnig svið fyrir viðburði og uppákomur. Hjólahús við Gasstöðina Við Gasstöðina á Rauðarárstíg verður hjólahús. Byggingin verður einnar hæðar skýli með hjólastæðum á tveimur hæðum innandyra. Borgin hyggst kanna áhuga mögulegra rekstraraðila á húsinu. Gasstöðin sést fyrir miðri mynd og fyrirhugað hjólahús hægra megin. Myndin sýnir einnig göngu- og hjólaleiðir um svæðið.Reykjavík Stálklætt mannvirki á torginu Á torginu verður einnig reist mannvirki fyrir stjórnbúnað lagna og snjóbræðslu. Það verður með áferð úr póleruðu stáli og á kynningarmynd sést hvernig lýsing og setaðstaða verða hluti af umhverfi þess. Stálklætt mannvirkið mun hýsa stjórnbúnað fyrir lagnir og snjóbræðslu. Setbekkur liggur meðfram því og lýsing endurkastast af yfirborðinu. Norðurhlutinn tilbúinn í lok næsta árs Framkvæmdir við norðurhluta Hlemms og aðstöðu fyrir Borgarlínu eiga að hefjast á næstu dögum. Samið hefur verið við Gröfu og grjót um verkið og áætlað er að þessum áfanga ljúki í lok árs 2027. Þar verða stöðvar og sérrými fyrir almenningssamgöngur ásamt endurgerðu torgsvæði. Samhliða verða lagnir endurnýjaðar og gatnamót Snorrabrautar og Hverfisgötu endurgerð. Fyrirhugaðar Borgarlínustöðvar norðan við mathöllina. Myndin sýnir biðsvæði, gönguleiðir, hjólastæði og gróður ásamt klukkuturninum við mathöllina.
Skipulagsmál Samgöngumál Borgarlína Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira