Suðvestanáttin ríkjandi næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 24. mars 2020 06:52 Spákort Veðurstofunnar fyrir hádegið í dag, eins og það lítur út nú í morgunsárið. Veðurstofan
Suðvestanáttin verður ríkjandi hjá okkur næstu daga. Veðurstofan spáir fimm til þrettán metrum á sekúndu, éljagangi á vestanverðu landinu sem geti náð austur með Norðvesturlandi og eins með suðausturströndinni. Oftast verði bjart og fallegt veður á Norðaustur- og Austurlandi í suðvestanáttinni. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti ætti víðast hvar að komast í eitt til fjögur stig að deginum á láglendi en reikna megi með að hitinn falli undir frostmark að næturlagi. „Útlit er fyrir að enn meira milt loft komist til okkar um og eftir helgi og gæti jafnvel staðið í nokkra daga og ætti þá að taka enn meira af snjónum sem fyrir er. Þar sem mikil snjóþyngsli eru um norðanvert landið og á Vestfjörðum er gott að hafa í huga að leysingavatn finnur alltaf syðstu leið og því mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum eins og kostur er,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 3-10 m/s og dálítil él, en bjartviðri A-lands. Hiti kringum frostmark. Á fimmtudag: Suðvestan 8-13 m/s með éljum, en bjartviðri NA-til. Víða vægt frost. Á föstudag: Vestlæg átt og dálítil él, en lengst af léttskýjað syðra. Heldur kólnandi í bili. Á laugardag, sunnudag og mánudag: Vestanáttir, dálítil slydda á V-verðu landinu og síðar súldarloft, en þurrt eystra og hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ Sjá meira