Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið móður sinni að bana Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. apríl 2020 12:36 Héraðsdómur Reykjaness kvað upp úr úrskurð um gæsluvarðhald yfir manninum til 15. maí. Vísir/Vilhelm
Karlmaður um þrítugt, sem grunaður er um að hafa orðið móður sinni að bana í heimahúsi í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 15. maí. Þetta segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi en fyrst var greint frá á vef Ríkisútvarpsins. Gæsluvarðhald yfir manninum rann út síðastliðinn föstudag. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði manninn í fjögurra vikna varðhald á grundvelli almannahagsmuna en aðspurður kveðst Margeir ekki vita til þess að maðurinn hafi kært þann úrskurð til Landsréttar. Líkt og greint hefur verið frá var lögreglan kölluð að íbúðarhúsi í Hafnarfirði um klukkan hálftvö aðfaranótt 6. apríl. Kona á sextugsaldri fannst látin í húsinu og voru tveir menn, annar um þrítugt og hinn á sextugsaldri, handteknir. Eldri maðurinn var látinn laus en sá yngri, sonur konunnar, úrskurðaður í gæsluvarðhald. Banamein móður hans er talið vera hnífstunga. Greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í mánuðinum að hinn grunaði eigi við geð- og fíknivanda að stríða. Hann hafði búið hjá móður sinni og stjúpföður um tíma.
Hafnarfjörður Lögreglumál Grunaður um manndráp í Hafnarfirði Mest lesið „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Erlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Innlent Útgöngubann í borginni í nótt Erlent 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Innlent Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Innlent Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Fleiri fréttir Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Hörmungar í Los Angeles og myrkur í Smyrilshlíð Nýr leikskóli rís í Elliðaárdal Sjá meira