Norðaustanátt þar sem hvassast verður norðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 30. apríl 2020 07:21 Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 14 í dag, eins og það leit út klukkan 7 í morgun. Veðurstofan
Veðurstofan spáir norðaustanátt í dag þar sem víða verður 8 til 15 metrar á sekúndu og hvassast norðvestantil á landinu. Einnig er viðbúið að einhverjir strengir verði við fjöll suðaustanlands. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að skúrir eða slydduél séu á Norður- og Austurlandi en skýjað og þurrt að kalla um sunnanvert landið. Hiti verður á bilinu 2 til 11 stig, hlýjast sunnanlands. „Dregur úr vindi og kólnar í kvöld og í nótt. Hiti verður í kringum frostmark norðan heiða á morgun og víða éljagangur, en bjart með köflum syðra framan af degi. Síðdegis þykknar upp með skúrum og jafnvel slydduél á stöku stað á Suður- og Suðausturlandi. Hiti 4 til 9 stig um landið sunnanvert á morgun. Fremur svalt verður á landinu um helgina og einhverjar skúrir eða él í öllum landshlutum, en útlit er fyrir hlýnandi veður og bjartviðri í næstu viku.“ Yfirlit: Flestar aðalleiðir á landinu eru greiðfærar en hálkublettir eru víða á fjallvegum á norðanverðu landinu. Upplýsingasíminn 1777 er opinn kl. 06:30-22:00. #færðin— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) April 30, 2020 Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Dálítil él norðan- og norðaustanlands, skúrir á Suður- og Suðvesturlandi, en annars skýjað að mestu og þurrt. Hiti 0 til 9 stig að deginum, svalast norðaustantil. Á laugardag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað og þurrt að kalla, en dálítil él á Suðausturlandi. Vægt frost norðan- og norðaustanlands, en hiti annars 0 til 8 stig að deginum, hlýjast suðvestantil. Á sunnudag: Hæg suðlæg átt, skýjað og lítilsháttar væta, en léttir til um norðanvert landið. Hiti 2 til 7 stig að deginum. Á mánudag: Suðvestan átt og rigning sunnan- og vestantil en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnar í veðri. Á þriðjudag: Vestanátt og skýjað að mestu, en þurrt. Léttir til er líður á daginn. Hlýnandi. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðlæga átt og bjartviðri. Hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið Sjá meira