Fimm skip kappkosta að finna loðnu á næstu tveimur vikum Kristján Már Unnarsson skrifar 4. janúar 2021 20:50 Birkir Bárðarson fiskifræðingur er leiðangursstjóri. Egill Aðalsteinsson Floti fimm skipa, þar af tveggja hafrannsóknaskipa, er að leggja úr höfn til víðtækrar loðnuleitar. Vonir eru bundnar við að niðurstöðurnar verði ávísun á tuttugu til þrjátíu milljarða króna loðnuvertíð á næstu vikum.
Það segir sitt um þá miklu hagsmuni sem eru í húfi að hafrannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson eru bæði send í leiðangurinn, en myndir af brottför þeirra úr Hafnarfirði í dag voru sýndar í fréttum Stöðvar 2. Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson siglir frá Hafnarfirði um tvöleytið í dag. Fjær er Árni Friðriksson að leggja frá bryggju.Egill Aðalsteinsson Jafnframt leggja útgerðir fram þrjú skip; Ásgrím Halldórsson, Aðalstein Jónsson og grænlenska skipið Polar Amaroq, og verða þrír starfsmenn Hafrannsóknastofnunar um borð í hverju þeirra. Þetta virðist einskonar leiftursókn í leit að loðnunni. „Já, já, það er rétt. Þetta er eins og við höfum í auknum mæli reynt að gera, það er að nota þá veðurglugga sem gefast með því að fara með miklu efforti á stuttum tíma,“ segir Birkir Bárðarson fiskifræðingur en hann stýrir leiðangrinum að þessu sinni úr landi. Hafrannsóknaskipin tvö sigla rakleitt á Vestfjarðamið en veiðiskipin þrjú halda frá Austfjarðahöfnun og fylgir flotinn fyrirfram ákveðnum leitarferlum. Skipin munu skanna hafsvæðin út af landgrunnskantinum með öllu norðanverðu landinu, allt frá Vestfjörðum til Austfjarða, en fylgjast má með ferli skipanna á vef Hafrannsóknastofnunar. Áætlaðir leitarferlar skipanna fimm.Hafrannsóknastofnun Bara það að Hafrannsóknastofnun sé þegar búin að leggja til 22 þúsund tonna kvóta eftir mælingu í desember gefur ákveðin fyrirheit. „Svo horfa menn líka til þess að í þessari mælingu okkar í desember þá vorum við að sjá fullorðna loðnu við ísröndina í Grænlandssundi. Þannig að þá svona vakna ákveðnar vonir um að eitthvað gæti legið undir ísnum. En það á bara eftir að koma í ljós.“ Innan sjávarútvegsins gera menn sér vonir um 300 þúsund tonna loðnuvertíð, sem gæti skilað 25 milljarða króna útflutningsverðmæti. Það byggja menn bæði á góðri mælingu ungviðis í fyrra ásamt því að talsvert fannst af loðnu fyrir áramót þrátt fyrir hafís. Árni Friðriksson bakkar frá bryggju í dag. Höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar eru í litskrúðuga húsinu vinstra megin.Egill Aðalsteinsson „Við mælum þó talsvert meira en í september.“ -Þannig að menn hafa tilefni til svona örlítið meiri bjartsýni? „Já, vissulega. Já, já,“ svarar Birkir sem vonast til að myndin skýrist á næstu 1-2 vikum. Áætlað er að farið verði aftur til loðnuleitar í byrjun febrúar. Það verður svo í kringum miðjan janúar sem búast má við tíðindum af niðurstöðum leiðangursins og hvort þjóðarbúið fái þá 20-30 milljarða króna lottóvinning í formi loðnuvertíðar eða kannski ekki neitt. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Sjávarútvegur Vestmannaeyjar Fjarðabyggð Hornafjörður Langanesbyggð Vopnafjörður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira