Innlent

„Getum haft mjög frjálst líf hér innan­lands þótt það séu ein­stak­lings­bundnar tak­markanir“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir til skoðunar að létta fyrr á samkomutakmörkunum en núgildandi reglugerð segir til um.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir til skoðunar að létta fyrr á samkomutakmörkunum en núgildandi reglugerð segir til um. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir til skoðunar hvort hægt sé að slaka fyrr á samkomutakmörkunum en gildistími núverandi reglugerðar segir til um sem er 17. febrúar.

Hann gefur hvorki upp um í hverju slíkar tilslakanir gætu verið fólgnar né hvenær hann mun skila minnisblaði til heilbrigðisráðherra með tillögum að tilslökunum.

Þetta kom fram í viðtali við Þórólf í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagði stöðuna í kórónuveirufaraldrinum nokkuð góða hér á landi.

Síðastliðna viku hafa aðeins tíu manns greinst með veiruna innanlands og voru þeir allir í sóttkví. Síðast greindist einstaklingur smitaður utan sóttkvíar þann 20. janúar.

Í ljósi þessa er til skoðunar að létta á samkomutakmörkunum.

„Við vitum hins vegar nákvæmlega ekki hvort veiran er einhvers staðar ennþá að leynast þarna úti í samfélaginu. Við sáum það í haust að það þurfti ekki nema eitt atvik eða tvö til þess að hleypa þessu af stað þannig að maður er svolítið brenndur af því,“ sagði Þórólfur og lagði áherslu á að það þyrfti að fara mjög varlega í allar tilslakanir.

Spurður hvort hann sæi fyrir sér einhverjar takmarkanir út árið kvaðst hann alveg sjá fyrir sér einhverjar takmarkanir.

„Því eins og oft hefur komið fram þá á meðan veiran er að ganga alls staðar annars staðar og er á blússi þá er alltaf hætta á að hún komi hingað inn þannig að við þurfum að hafa einhverjar takmarkanir. Það er bara spurningin hvaða takmarkanir þurfum við að hafa. En ég held að það sé númer eitt, tvö og þrjú þessar einstaklingsbundnu sýkingavarnir sem skila okkur öllu. Við getum haft mjög frjálst líf hér innanlands þótt það séu einstaklingsbundnar takmarkanir; fólk passi sig á tveggja metra reglunni, noti grímur og eitthvað svona. Þannig að ég sé alveg fyrir mér að það geti verið eitthvað áfram og við getum slakað á á öðrum sviðum vonandi,“ sagði Þórólfur í Bítinu í morgun.

Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×