Innlent

Tveir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur við Smáralind

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Annar bíllinn er talsvert skemmdur.
Annar bíllinn er talsvert skemmdur. Vísir/vésteinn

Tveggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut rétt við Smáralind nú á tíunda tímanum. Tveir voru fluttir á sjúkrahús til skoðunar en meiðsl þeirra eru talin minniháttar, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Einhverjar umferðartafir hafa orðið vegna óhappsins en það varð þó sem betur fer ekki á álagstíma, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu. 

Dælubíll var sendur á staðinn til að tryggja vettvang. Unnið er að því að koma bílunum burt af veginum og hreinsa slysstað.

Dælubíll var sendur á vettvang.Vísir/vésteinn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×