Sjáðu hvernig Mbappé fór með Barcelona vörnina í Meistaradeildinni í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2021 11:30 Gerard Pique og félagar í Barcelona réðu ekkert við Kylian Mbappe í gær. AP/Joan Monfort Kylian Mbappé skoraði glæsilega og sögulega þrennu á móti Barcelona í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar i gærkvöldi.
Barcelona liðið spilar væntanlega ekki fleiri heimaleiki í Meistaradeildinni á þessu tímabili eftir að hafa fengið útreið á heimavelli á móti Kylian Mbappé og félögum í Paris Saint Germain í gærkvöldi. PSG vann leikinn 4-1 og á seinni leikinn eftir á heimavelli sínum. Það var heldur fátt í leiknum í gær sem bendir til þess að Barcelona geti gert eitthvað í París. Maður leiksins var án efa franski landsliðsframherjinn Kylian Mbappé sem blómstraði í fjarveru Neymar sem gat ekki spilað vegna meiðsla. Klippa: Þrenna Kylian Mbappé á móti Barcelona Mbappé skoraði þrennu í leiknum og ofar en ekki var vandræðalegt að fylgjast með varnarmönnum Barcelona reyna að halda aftur af honum. Mbappé varð líka fyrstur til að skora þrennu á móti Barclona á Nývangi í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar og sá fyrsti í meira en tvo áratugi til að skora Evrópuþrennu á móti Barca á heimavelli spænsku risanna. Mörk Kylian Mbappé voru líka af fallegri gerðinni og sýndu það svart á hvítu hversu öflugur knattspyrnumaður þessi 22 ára Frakki er orðinn. Hér fyrir ofan má sjá mörkin hjá Kylian Mbappé í leiknum í gær og hér fyrir neðan eru fleiri tilþrif hjá Frakkanum í þessum leik. Klippa: Mörk Mbappé á móti Barcelona
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira