Innlent

Þessar breytingar á sóttvarnareglum taka gildi 18. mars

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Strangari reglur munu gilda um sóttvarnir á hlaðborðum frá og með 18. mars.
Strangari reglur munu gilda um sóttvarnir á hlaðborðum frá og með 18. mars. GEtty

Skrá þarf alla gesti á viðburðum og óheimilt er að bjóða upp á veitingar í hléi þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir tekur gildi. Þá þarf að passa betur upp á sóttvarnir á stöðum þar sem boðið er upp á hlaðborð. Reglugerðin tekur gildi 18. mars og gildir til 9. apríl.

Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins um breytingarnar er haft upp úr minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra að góður árangur hafi náðst í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn hér á landi. Takmarkanir séu trúlega hvergi minni í Evrópu en hér og mikilvægt sé að varðveita þennan góða árangur. 

„Frá 19. febrúar hafa átta einstaklingar greinst innanlands og af þeim voru fjórir í sóttkví. Síðastliðna sjö daga hafa fimm greinst innanland með hið svokallaða breska afbrigði veirunnar (B.1.1.7) sem álitið er vera meira smitandi en önnur afbrigði og auk þess talið valda meiri veikindum hjá börnum. Sóttvarnalæknir telur ekki efni til að draga úr samkomutakmörkunum innanlands, heldur mælist til að þær verði áfram óbreyttar að mestu,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Eftirfarandi breytingar taka gildi 18. mars:

Allir gestir skráðir: Á öllum viðburðum, svo sem í athöfnum trú- og lífsskoðunarfélaga, sviðlistar-, menningar og íþróttaviðburðum, ráðstefnum, fyrirlestrum og sambærilegum viðburðum, skulu gestir skráðir í númeruð sæti og teknar niður upplýsingar um nafn, kennitölu og símanúmer hvers og eins.

Engar veitingar í hléi: Óheimilt er að selja eða bjóða veitingar í hléi á viðburðum og skulu gestir beðnir um að halda kyrru fyrir í sætum sínum.

Engin blöndun milli sóttvarnahólfa: Skipuleggjendur viðburða skulu tryggja að ekki séu fleiri en 50 manns í hverju sóttvarnahólfi og að ekki verði blöndun gesta á milli hólfa.

Hlaðborð: Áfram verður heimilt að bjóða upp á hlaðborð en gestum gert skylt að sótthreinsa hendur áður en þeir sækja sér mat á hlaðborðið og einnig að því loknu, auk þess gæta að 2 metra nálægðarmörkum.

Að öðru leyti eru reglurnar óbreyttar frá því sem verið hefur. Fjöldamörk samkomubanns verður áfram fimmtíu manns, tveggja metra reglan er áfram í gildi og grímuskylda er óbreytt. Afgreiðslutími skemmti- og veitingastaða verður enn fremur sá sami og áður.


Tengdar fréttir

Þeir sem eru bólusettir utan Schengen mega koma til landsins

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að taka gild bólusetningarvottorð farþega sem koma til landsins frá ríkjum utan Schengen. Þar með má hleypa þeim inn í landið sem bólusettir eru gegn kórónuveirunni í til dæmis Bretlandi og Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×