Viðskipti innlent

Raunveruleikaþáttur MTV fékk 312 milljónir endurgreiddar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Keppendur í þættinum við íslenska strönd.
Keppendur í þættinum við íslenska strönd.

Framleiðslukostnaður raunveruleikasjónvarpsþáttarins The Challenge nam á annan milljarð króna. Öll serían var tekin upp á Íslandi í september en Pegasus sá um verkefnið fyrir hönd MTV-sjónvarpsstöðvarinnar.

Kostnaðinn má lesa út úr yfirlitstöflu yfir endurgreiðslur á vef Kvikmyndamiðstöðvar. RÚV greindi fyrst frá

Endurgreiðslan hljóðar upp á 25 prósent af framleiðslukostnaði og fékk Pegasus endurrgeiddar 312 milljónir króna. Framleiðslukostnaður sem sótt var um endurgreiðslu fyrir hefur því numið um 1250 milljónum króna.

Nafn þáttarins hljómar sennilega ekki kunnuglega í eyrum Íslendinga, en uppruni hans ætti að vera kunnur þeim sem höfðu aðgang að MTV á fjölvarpi Stöðvar 2 í lok síðustu aldar. The Challenge er afleggjari af The Real World, sem var feykivinsæll á MTV allt frá því að hann hóf göngu sína árið 1992, og er reyndar enn í gangi.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem The Challenge heimsækir Ísland, því hluti 22. þáttaraðar var tekinn upp hér á landi, sú sería bar undirtitilinn Battle of the Exes. Þar voru fyrrum pör, með tengingu við raunveruleikaþætti, látin keppa á móti hvort öðru.

Hér má sjá brot úr fyrsta þættinum sem sýndur var í desember.

Af öðrum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum sem fengu endurgreiddan framleiðslukostnað

Alls fengu 66 verkefni fjórðung framleiðslukostnaðar endurgreiddan fyrir árið 2019 en átján hafa fengið endurgreidd fyrir árið 2020 það sem af er ári 2021. 

Meðal annarra verkefna má nefna Kappsmál hjá RÚV sem fékk 18 milljónir endurgreiddar og Áramótaskaupið sem fékk 13 milljónir.

Þessi verkefni hafa fengið endurgreidd 25 prósent af framleiðslukostnaði.

Ummerki, Bibba flýgur og Kjötætur óskast, sem sýnd voru á Stöð 2 en framleidd af Orca films, 101 Productions og Lóu Productions fengu endurgreiddar þrjár til sex milljónir króna.

Hækkun rána, umtöluð heimildarmynd um efnilegar körfuboltastelpur sem vilja fá að keppa við stráka og sýnd var í Sjónvarpi Símans, fékk þrettán milljónir endurgreiddar. Framleiðslukostnaður við myndina hefur því numið rúmum fimmtíu milljónum.

Listann í heild má sjá að ofan en fleiri verkefni gætu bæst við eftir því sem líður á árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×