Innlent

Varað við brennisteinsmengun í borginni

Kjartan Kjartansson skrifar
Vindur gæti fært brennisteinsdíoxíð frá eldstöðvunum á Reykjanesi yfir höfuðborgina og valdið svifryksmengun í dag og á morgun.
Vindur gæti fært brennisteinsdíoxíð frá eldstöðvunum á Reykjanesi yfir höfuðborgina og valdið svifryksmengun í dag og á morgun. Vísir/RAX

Líklegt er að brennisteinsdíoxíð frá eldgosinu á Reykjanesi berist til höfuðborgarinnar og að mengunar verður vart um tíma í dag og á morgun. Viðkvæmum einstaklingum, foreldrum barna og atvinnurekendum er ráðlagt að fylgjast með loftgæðamælingum.

Háir mengunartoppar geta komið fram á loftgæðamælum þegar mengun berst frá eldgosinu í Geldingadölum yfir höfuðborgarsvæðið. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að slíkir toppar gangi yfirleitt fljótt yfir en að mengun í lægri styrk geti varað í lengri tíma.

Nú í hádeginu mældust loftgæði almennt góð á höfuðborgarsvæðinu. Eftir hádegi í dag er aftur á móti útlit fyrir sunnan- og suðvestanátt nærri gosstöðvunum og hægum vindi. Mengun frá eldgosinu berst því til norðurs yfir Vatnsleysuströnd og jafnvel einnig til norðausturs yfir höfuðborgarsvæðið.

Á morgun er spáð suðvestan 8-13 m/s á Reykjanesskaga og mengunin berst þá til norðausturs yfir höfuðborgarsvæðið.

Hægt er að fylgjast með mælingunum á loftgæðavef Reykjavíkurborgar og vef Umhverfisstofnunar. Þá er hægt að fylgjast með spá um dreifingu gass frá eldstöðinni á vef Veðurstofunnar.

Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:

  • Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr SO2 sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni.
  • Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun

Ráðstafanir til varnar SO2 mengun innandyra

  • Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr.
  • Hækkaðu hitastigið í húsinu.
  • Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×