Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Fasteignafélagið Þórkatla vinnur nú að uppfærslu hollvinasamninga og gistiviðauka þeirra sem gerir ráð fyrir að frá og með 1. september geti hollvinir ekki gist fleiri en tólf nætur á mánuði í eignunum. Bæjarfulltrúi er ósáttur en bæjarstjórn fundar með stjórn Þórkötlu á morgun. Innlent 2.6.2026 21:29
Skjálftahrinan mallar enn Skjálftahrinan við Hellisheiði heldur áfram en auk þess hefur virkni mælst í dag við Kleifarvatn á Reykjanesskaga og á Reykjaneshrygg. Náttúruvársérfræðingur segir virknina vera eðlilega. Innlent 2.6.2026 16:37
Skjálftahrina úti af Reykjanesi Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi og hefur stærsti skjálftinn mælst 3,5 að stærð. Ekki mælist órói á svæðinu, að sögn Veðurstofu. Innlent 24.5.2026 07:55
„Við verðum að fá fólk heim aftur“ Grindvískt fjölskyldufyrirtæki vinnur nú að því að fylla upp í allt að 15 metra djúpa sprungu við íþróttahúsið í Grindavík. Framkvæmdastjórinn segir verkið snúast um að gera bæinn öruggan á ný fyrir börn og fjölskyldur. Innlent 27. apríl 2026 21:00
Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í. Innlent 23. apríl 2026 00:08
Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kalla eftir samtali við ríkið um mótvægisaðgerðir, eins og að undirbúa gerð varnargarða, vegna nýrrar skýrslu Veðurstofu um hættu á hraunrennsli yfir hluta byggðarinnar. Bæjarstjórinn telur ekki ástæðu til að falla frá áætlunum um ný hverfi á hraunasvæðum. Innlent 22. apríl 2026 20:20
Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Grindvíkingar segja að þeim sé treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Þeir þakka landsmönnum og stjórnvöldum fyrir stuðninginn en krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi eðlilegrar endurreisnar bæjarins. Innlent 22. apríl 2026 18:44
Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Bæjarstjórn Grindavíkur stendur fyrir opnum íbúafundi fyrir íbúa Grindavíkur, kjörna fulltrúa og fulltrúa Fasteignafélagsins Þórkötlu. Fundurinn er í beinu streymi á Vísi. Innlent 22. apríl 2026 16:01
Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Hildigunnur Thorsteinsson veðurstofustjóri segir nýjar skýrslur um hættusvæði vegna hraunrennslis kalla á umræðu um það hvort setja þurfi skýrari reglur um hvar megi skipuleggja byggð. Innlent 22. apríl 2026 13:50
Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Ríkisendurskoðun gerir ýmsar athugasemdir við það hvernig staðið var að undirbúningi og gerð varnargarða við Svartsengi og Grindavík. Lögum samkvæmt var ríkislögreglustjóra falið að fara með framkvæmd aðgerða en Ríkisendurskoðun kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embættinu ofviða. Innlent 22. apríl 2026 10:32
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. Innlent 21. apríl 2026 22:10
Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. Innlent 21. apríl 2026 15:30
Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur, þar sem innstreymi kviku er hægt en stöðugt. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er enn talin líklegasta sviðsmyndin. Innlent 14. apríl 2026 14:54
Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá Grindvíkingarnir Dagmar Valsdóttir og Eva Lind Matthíasdóttir eru verulega ósáttar við tilmæli Grindavíkurnefndar um veru barna í bænum og skólahald. Þær segja stjórnvöld ekki hlusta og ítrekað taka ákvarðanir um og fyrir Grindvíkinga án samráðs við þá. Innlent 13. apríl 2026 09:59
Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Formaður hagsmunasamtaka um endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur vonast til að bæjaryfirvöld haldi áfram vinnu við undirbúning skólastarfs í bænum þrátt fyrir tilmæli um að börn flytji ekki til Grindavíkur meðan óvissa varir. Margt geti breyst á stuttum tíma og mikilvægt að halda uppbyggingu áfram. Innlent 12. apríl 2026 13:30
Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir Grindavíkurbæ og Grindvíkingum betur borgið án aðkomu ríkisstjórnarinnar. Ráðherrarnir Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland hafi lofað að snúa ekki baki við þeim en ekki efnt þau loforð. Innlent 10. apríl 2026 16:55
Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Grindavíkurnefnd mælir ekki með því að barnafjölskyldur flytji aftur til Grindavíkur á meðan óvissa varir enn í bænum. Innlent 10. apríl 2026 14:42
Bein útsending: Kynna áform um endurreisn Grindavíkur Grindavíkurnefnd hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14:00. Þar mun nefndin kynna tvær skýrslur sem snúa að endurreisn Grindavíkur. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 10. apríl 2026 13:33
Muni ekki fallast á tilmæli til barnafjölskyldna í Grindavík Grindavíkurnefnd mun í dag kynna skýrslur um endurreisn Grindavíkur og næstu skref. Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur furðar sig á því að tillögur Þórkötlu um endurkaup Grindvíkinga á heimilum sínum verði ekki kynnt samhliða skýrslu nefndarinnar. Innlent 10. apríl 2026 12:00
Mesta kvikusöfnun til þessa Aldrei hefur eins mikil kvika safnast saman undir Svartsengi síðan eldgosahrina hófst í nágrenni við Grindavík á Reykjanesskaga. En kvikustreymið hefur sömuleiðis aldrei verið hægara. Líklegasta sviðsmyndin er enn kvikuhlaup eða eldgos, sem yrði að líkindum stærra en fyrri gos. Innlent 31. mars 2026 20:09
Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna. Innlent 28. mars 2026 16:00
„Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Eldfjallafræðingur segir að eldgosahrinan á Reykjanesskaga sé líklega farin að lognast út af eftir fimm ára umbrotatímabil. Mögulega sé nú komið að kaflaskilum og hann segir að áratugir gætu verið í næsta gos. Innlent 19. mars 2026 23:01
Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og síðustu vikur og er innstreymi af kviku hægt en stöðugt. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um yfir 23 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Innlent 17. mars 2026 14:24
Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Vísbendingar eru um að eldvirkni við Sundhnúksgíga gæti verið að líða undir lok og unnið er að nýrri sviðsmyndagreiningu hjá Veðurstofunni. Fagstjóri aflögunarmælinga segir ekkert benda til þess að næsta gos sé yfirvofandi. Innlent 10. mars 2026 13:51