Lífið

Glóandi jörð og nýir gígar í gegnum linsu RAX

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eldgosið við Fagradalsfjall nú hefur staðið yfir í tæpar fjórar vikur, eða frá 19. mars. 
Eldgosið við Fagradalsfjall nú hefur staðið yfir í tæpar fjórar vikur, eða frá 19. mars.  Vísir/RAX

Það var fjölmenni við gosstöðvarnar á Reykjanesi seint í gær, þegar Ragnar Axelsson ljósmyndari Vísis var þar að mynda. 

Nýir gígar hafa augljóslega dregið að mannfjölda, en í gærmorgun var tilkynnt um að gígunum hefði fjölgað. RAX náði einstökum myndum af gosinu í rökkrinu og leyfum við þeim að tala sínu máli. 

Rennandi hraunið var tilkomumikið í myrkrinu í gær.Vísir/RAX

Göngufólk á öllum aldri hefur gert sér ferð upp að gosinu síðustu vikur. 

Vísir/RAX

Tveir nýir gígar bættust við í gær svo þeir sem höfðu áður komið að gosinu fengu að sjá margt nýtt og spennandi.

Vísir/RAX

Veðrið var gott á gossvæðinu í gær og var því fjölmennt á svæðinu fram á kvöld.

Margir velja að hjóla að gosinu en svæðið er samt ekki auðvelt yfirferðar.Vísir/RAX

Fólk var misjafnlega vel útbúið. Flestir voru klæddir í góðan útivistarklæðnað en þó er enn nokkuð um að fólk gangi upp að gosinu á gallabuxum og strigaskóm.

Þessum var ekki kalt í íslenska vorveðrinu í gær.Vísir/RAX

Ljósmyndarar og áhugaljósmyndarar keppast um að ná flottum myndum af þessari mögnuðu sýningu sem móðir náttúra býður nú upp á. 

Gosið er sérstaklega myndrænt í lok dags.Vísir/RAX

Stemningin við gosið er oftast mjög góð og reyna flestir að virða fjarlægðarmörk, þó að það reynist oft erfitt í stærstu brekkunni. 

Þessi virðist nokkuð sátt með útsýnið að lokinni göngunni.Vísir/RAX

Enn er töluvreður kraftur í þessu þó að það hafi gosið í tæpan mánuð samfleytt-

Rauðglóandi hraunið fangað í gegnum linsu RAX.Vísir/RAX

Símasjálfur á gosstað virðist vera algjör skylda, enda ekki á hverjum degi sem okkur gefst færi á svona flottum bakgrunni.

Vísir/RAX

Mörgum finnst undrandi að Íslendingar flykkist í áttina að eldgosi en ekki frá því. Sumir fara meira að segja óþæginlega nálægt glóandi hrauninu.-

Mikill fjöldi safnaðist saman við gosið í góða veðrinu á Reykjanesi í gær.Vísir/RAX

Samkvæmt jarðvísindadeild Háskóla Íslands jókst virknin í gosinu þegar nýju gígarnir mynduðust í gær.

Allir með símana á lofti.Vísir/RAX

Tengdar fréttir

Martraðir, óráð og eftirköst Covid-19

„Það er eins og mannkynið hafi í fyrsta skiptið í sögunni sameinast, við höfum eignast sameiginlegan óvin,“ segir Jón Ársæll Þórðarson sem veiktist illa af Covid-19.

RAX yfir eldgosinu í 360° myndbandi

Þegar náttúran lætur til sín taka er ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, best þekktur sem RAX, ekki langt undan. Hann hefur flogið fjórum sinnum yfir eldgosinu í Geldingadal til að mynda en gosið tekur stöðugum breytingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.