„Nei, mér er ekki í nöp við Dag B. Eggertsson“ Jakob Bjarnar skrifar 19. apríl 2021 11:37 Ólafur Guðmundsson varaborgarfulltrúi botnaði skopmynd hins snjalla Gunnars Karlsson með því að segja að best væri að setja túrbó í bíl Vigdísar Hauksdóttur þar sem hún hefur verið stöðvuð á sínum kappakstursbíl af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.
Mynd Gunnars Karlssonar birtist í laugardagsútgáfu Fréttablaðsins og Vigdís borgarfulltrúi Miðflokksins deildir henni samviskusamlega á sinni Facebooksíðu. „Mynd segir meira en þúsund orð,“ segir Vigdís og Ólafur, sem reyndar var sá sem vakti athygli Vigdísar á myndinni, setur inn svohljóðandi athugasemd: „Ég myndi setja Turbó í þennan bíl hjá Vigdísi, eins og búið er að gera í Formulu 1...“ Vísi hafa borist ábendingar um að hér sé Ólafur á hálum ís; að hann bara geti ekki leynt andúð sinni á borgarstjóranum, og sé þarna að gefa til kynna að helst ætti að aka yfir hann. Ólafur lenti í honum kröppum þegar hann setti tjáði sig um hitamál, þegar kom á daginn að för eftir byssukúlur voru á bíl borgarstjóra. „Byrjaðu á sjálfum þér... Hér er afleiðing af því sem hampað hefur verið frá svokalaða hruninu 2008. Nú er byltingin komin heim og þú verður bara að taka því Hr. borgarstjóri.“ Ýmsir voru á því að um væri að ræða sérlega ósmekkleg ummæli. Ólafur, sem baðst afsökunar á þeim, telur reyndar að þarna hafi verið vel í lagt, við að túlka ummælin á einn veg. Ekki í nöp við borgarstjóra Ólafur svarar spurningu blaðamanns, hvort honum sé í nöp við Dag, afdráttarlaust: „Neinei, mér er ekki í nöp við hann. Ég þekki hann ekkert þannig en menn takast á í pólitíkinni. Ég skil ekki að menn megi ekki gera smá grín. Það var talið grín þegar Dóra Björt [Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata] vildi lykla bíla. Hún sagðist bara vera að gera grín. Ég segi bara: Þetta er grín. Mér finnist þetta skrambi fín mynd. Vigdís ætti að komast sem lengst á þessum bíl, það var nú hugsunin.“ - mynd segir meira en þúsund orð Posted by Vigdís Hauksdóttir on Laugardagur, 17. apríl 2021 Ólafur telur þau sem tilheyra meirihlutanum geta leyft sér flest en ef á þau er andað verði andskotinn laus. Honum finnst fólk ekki samkvæmt sjálfu sér í því. Ólafur telur það fráleita túlkun á ummælum hans að hann vilji að ekið sé yfir borgarstjóra, sú sé meiningin. Þetta sé á engan hátt beint gegn Degi. „Þetta var grínmynd og ég svaraði því í gríni. Svo er annað mál að menn eiga ekki að vera að þvælast um með hraðahindranir inná kappakstursbraut. Þar eru engar hraðatakmarkanir.“ Fyrrverandi Formúla 1 dómari Ólafur segir ástæðuna fyrir því að hann fór í stjórnmál á sínum tíma vera einmitt umferðarmálin. Sem hann segir að séu í miklum ólestri í borginni. Og meirihlutinn sé á miklum villigötum í þeim málaflokki. Þá segir Ólafur að ummæli hans séu að einhverju leyti innblásin af því að hann var að horfa á „formúluna“ um helgina, fín keppni. „Ég var að dæma í Formúla 1, dæmdi einhverjar 20 keppnir og er eini Íslendingur sem hefur verið þar. Hef orðið svo frægur að reka Lewis Hamilton heim. Þetta voru 60 keppnir sem ég dæmdi allt í allt í kappakstri fyrir FIA, alþjóða bílasambandið,“ segir Ólafur sem á langan feril að baki í akstursíþróttum og stjórnarstörfum í tengslum við þær.
Reykjavík Samfélagsmiðlar Borgarstjórn Borgarlína Skipulag Umferðaröryggi Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira