Ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga Birgir Olgeirsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 22. maí 2021 10:37 Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingaverkfræðingur hjá Verkís, við eystri varnargarðinn í syðri Meradal í dag. Egill Aðalsteinsson Umhverfis- og byggingaverkfræðingur ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga þar sem líkur eru á að hraun fari fljótlega að renna niður brekkuna og ofan í Nátthaga.
Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingaverkfræðingur hjá Verkís, er stödd á gossvæðinu þar sem unnið er því að meta aðstæður. „Aðstæður eru þannig núna að hérna vestanmegin þar er stopp í bili og hraun komið hátt upp á þennan varnarruðning sem var reistur í gær. Austanmegin hefur farið að flæða yfir og það streymir enn af fullum krafti yfir garðinn þannig að hann hefur ekki brostið heldur flæðir yfir hann, sagði Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingaverkfræðingur hjá Verkís. „Þannig það er núna að streyma niður í þessar smáskálar bakvið stífluna og það rennur áfram þar til þær eru orðnar fullar, þá myndi hraunið byrja að streyma niður brekkuna og niður í Nátthaga. Þannig ég myndi ekki ráðleggja fólki að vera ekki þarna efst í Nátthaga næst brekkunni.“ Stíflugerð í Nátthaga kemur til greina Hún segir erfitt að segja til um hvenær hraunið renni niður í Nátthaga. „Ég skaust þarna yfir áðan og þá var töluvert streymi en það er líka töluvert rými áður en það fer að fæða alla leiðina niður.“ Það átti að varna því að hraunið fari niður í Nátthaga. Er hægt að gera eitthvað í Nátthaga til að verjast þvi að hraun fari niður á Suðurstrandarveg? „Það væri mögulega hægt að skoða stíflugerð neðarlega í Nátthaga og það er heilmikið rými í Nátthaganum sjálfum en það á eftir að fara yfir þá stöðu og meta hvort menn vilji ráðast í það eða hvað, en það væri eitthvað sem hægt væri að skoða,“ sagði Hörn. Austanmegin hefur hraun flætt yfir garðinn og streymir enn af fullum krafti.HÖRN HRAFNSDÓTTIR Vikur þar til hraun gæti flætt yfir Suðurstrandarveg Miðað við núverandi stöðu, mun það taka vikur eða mánuði þar til hraun gæti náð yfir Suðurstrandarveg? „Mér finnst líklegt að það séu einhverjar vikur. Þegar hraunið rennur þarna niður þá tekur kólnun við. Það er töluverð vegalengd og eldfjallafræðingar hafa sagt að hraunið renni ekki langt þegar það verður fyrir mikilli kólnun þannig að fyrst tekur örugglega við tími þar sem þetta rennur niður í Nátthaga, kólnar þar og byrjar að staflast upp. Svo verður kannski spurning um nýtt jafnvægi þar sem hraunið myndar einhverskonar hraunpolla sem það getur hoppað á milli til þess að komast áfram þannig það er erfitt að spá fyrir um þetta,“ sagði Hörn. Jarðeðlisfræðingurinn Páll Einarsson gagnrýndi framkvæmdirnar í kvöldfréttum Stöðvar 2 á þriðjudag eftir að ríkisstjórnin samþykkti að verja tuttugu milljónum í þær. Hann sagði þetta sóun og að engin leið væri að stöðva hraunið með varnargörðum. Aðspurð segir Hörn að mikilvægar upplýsingar hafi fengist með þessu verkefni. „Já mér finnst við hafa fengið fínar upplýsingar út úr þessu og við eigum eftir að fara yfir þær.“ Hitinn er mikill á svæðinu eins og sést á þessari mynd.HÖRN HEIÐARSDÓTTIR Mikilvægur upplýsingabanki fari að gjósa annars staðar Hún segir að þessi reynsla muni nýtast fari að gjósa annars staðar á svæðinu. „Við erum að hugsa þetta til lengri tíma. Við erum að horfa á Reykjanesið í heild og reyna að læra á það sem gæti verið fram undan næstu áratugina eða árhundruði miðað við það sem okkar fræðimenn segja. Og búa til upplýsingabanka sem gæti nýst okkur.“
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Grindavík Tengdar fréttir Varnargarðarnir alls ekki sóun ef Reykjanesið hefur vaknað til lífs Þó að varnargarðarnir á gosstöðvunum reynist gagnslausir í baráttunni við að halda hrauninu frá innviðum á Reykjanesi telur Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Verkís sem stýrir gerð varnargarðanna, að reynslan af verkefninu verði gífurlega gagnleg í framtíðinni ef eldstöðvar á Reykjanesi hafa vaknað til lífsins. 20. maí 2021 22:31 Ýttu upp neyðargörðum fram á nótt til að verjast hraunrennsli Stíflugerðarmenn á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli stóðu í æsispennandi kapphlaupi í gærkvöldi og fram á nótt við að ryðja upp neyðargörðum þegar hraunrennsli stefndi á eystri varnargarðinn ofan Nátthaga. Búið er að bæta við annarri jarðýtu til að hraða styrkingu varnargarðanna. 20. maí 2021 13:25 Mest lesið Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Erlent Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Erlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Réðst á lögreglumann í miðbænum Fréttir Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Innlent Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Erlent „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Innlent Fleiri fréttir Píratar kjósa formann í lok mánaðar Reyndi að flýja lögreglu en endaði uppi á kanti Engin ástæða til að breyta neinu Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Brosið fer ekki af Hrunamönnum Eldur bak við innstungu reyndist minni háttar Hætta á fölsuðum megrunarlyfjum og leitað í ræturnar Útkall á mesta forgangi vegna kajakræðara í vanda „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Í beinni: Skyndifundur Sjálfstæðismanna á Grand Hotel Alltaf hægt að gera betur á meðferðarheimilunum Menningarverðlaun Árborgar til hjóna á Eyrarbakka Seatrips gert að greiða hundrað milljónir vegna tjóns á flutningaskipi Óskiljanleg lánaviðmið og Grammy-tilnefning stórstjörnunnar Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Happdrætti Háskólans sýknað af tugmilljóna kröfu Catalinu Veittist fyrst að dyravörðum og svo að lögreglumönnum Fluttur á slysadeild eftir hópárás Grunaður um að aka undir áhrifum með börnin aftur í Sótti konuna á lögreglustöðina áður en hann réðst á hana Hrekur Walt-Disney líkingar þingmanns Fjöldi gesta á vellinum myndi takmarkast við 5000 Mikil hætta skapist sé ekið á nýsteypta brúna Nauðguninni flett upp í LÖKE hjá þremur embættum Þyrstir fagna komu jólabjórsins til byggða Fær ekkert greitt því að hann er Íslendingur Óbreytt klukka stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu Bjargey meðferðarheimili: „Þetta var eins og lúxusneyslurými“ Sjá meira
Varnargarðarnir alls ekki sóun ef Reykjanesið hefur vaknað til lífs Þó að varnargarðarnir á gosstöðvunum reynist gagnslausir í baráttunni við að halda hrauninu frá innviðum á Reykjanesi telur Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Verkís sem stýrir gerð varnargarðanna, að reynslan af verkefninu verði gífurlega gagnleg í framtíðinni ef eldstöðvar á Reykjanesi hafa vaknað til lífsins. 20. maí 2021 22:31
Ýttu upp neyðargörðum fram á nótt til að verjast hraunrennsli Stíflugerðarmenn á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli stóðu í æsispennandi kapphlaupi í gærkvöldi og fram á nótt við að ryðja upp neyðargörðum þegar hraunrennsli stefndi á eystri varnargarðinn ofan Nátthaga. Búið er að bæta við annarri jarðýtu til að hraða styrkingu varnargarðanna. 20. maí 2021 13:25