Lena í Stjörnuna: Rakel Dögg hefur fylgst með henni síðan hún var tíu ára Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2021 16:39 Lena Margrét Valdimarsdóttir verður áfram í bláu en skiptir Safamýrinni út fyrir Garðabæinn. Fésbók/Stjarnan Handbolti Handknattleikskonan stórefnilega Lena Margrét Valdimarsdóttir hefur samið við Stjörnuna en hún yfirgefur þar með uppeldisfélagið sitt Fram.
Stjarnan tilkynnti um þriggja ára samning við Lenu Margréti á fésbókarsíðu sinni í dag. Lena Margrét er á 21. aldursári og hefur spilað með Fram síðan að hún var átta ára gömul. Lena hefur verið Íslandsmeistari með Fram í tvígang og hefur verið fastamaður í öllum yngri landsliðum Íslands. Á síðasta tímabili spilaði Lena bæði í Olísdeildinni og einnig með U-liði Fram í Grilldeildinni, hún gerði sér lítið fyrir og var markahæsti leikmaður deildarinnar. Rakel Dögg Bragadóttir þjálfari Stjörnuliðsins, fagnar því að vera komin með Lenu Margréti í sitt lið. „Það eru frábærar fréttir að Lena vilji ganga til liðs við okkur. Hún hefur verið ein efnilegasta handboltakona landsins lengi og ég er rosalega spennt að vinna með henni. Ég hef fylgst með hennar handboltaferli síðan hún var aðeins 10 ára gömul en strax þá sá ég að metnaðurinn og hugarfarið hjá Lenu er til fyrirmyndar. Hún er fjölhæfur leikmaður, með sterkt skot, gott auga og góð maður á mann. Hún kemur til með að styrkja okkar hóp gríðarlega mikið fyrir komandi átök í Olísdeildinni,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir við fésbókarsíðu Stjörnunnar.
Olís-deild kvenna Fram Stjarnan Mest lesið Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Uppgjörið: Spánn - Ísland 3-0 | Spænska liðið sýndi mátt sinn og megin á köflum Fótbolti Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Formúla 1 Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Fleiri fréttir Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Haukar - Valur 19-23 | Valskonur bikarmeistarar ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Uppgjör: ÍR-KA 32-31 | ÍR í bikarúrslit í fyrsta sinn í tólf ár Viktor Gísli varði vel og skoraði líka í Meistaradeildinni Leik lokið: FH-Haukar 21-25 | Haukar í bikarúrslit eftir sigur á FH Elvar allt í öllu í útisigri í Íslendingslag „Hvar leikurinn er spilaður kemur mér í rauninni ekkert við“ Sjá meira