Bitcoin löggiltur gjaldmiðill í El Salvador Árni Sæberg skrifar 9. júní 2021 11:42 Nú er hægt að versla í matinn með Bitcoin í El Salvador. EPA/SASCHA STEINBACH Löggjafarþing El Salvador samþykkti í dag frumvarp um löggildingu Bitcoin sem gjaldmiðils. El Salvador er fyrsta ríki heimsins sem löggildir Bitcoin. Forseti landsins, Nayib Bukele, barðist fyrir frumvarpinu og segir um söguleg tímamót að ræða.
Forseti El Salvador tilkynnti að landið myndi taka Bitcoin upp sem gjaldmiðil á Bitcoin ráðstefnu síðastliðinn laugardag. Hann sagði löggildingu rafmyntarinnar vera leið til að auka erlendar fjárfestingar í smáríkinu í mið-ameríku. Forsetinn sagði enn fremur að ef einungis einu prósenti Bitcoin í heiminum yrði fjárfest í El Salvador, myndi verg landsframleiðsla landsins aukast um 25 prósentustig. Bitcoin geri öllum kleift að stunda viðskipti Fjárhagur El Salvador er ekki með góðu móti og landið reiðir sig að miklu leiti á peningasendingar frá Salvadorum sem búa erlendis. Vonir standa til að upptaka Bitcoin muni auðvelda millifærslur til landsins og draga úr kostnaði þeirra. Smáforritið Strike verður notað til að halda utan um notkun Salvadora á Bitcoin. Því munu íbúar landsins einungis þurfa aðgang að snjallsíma til að nýta rafmyntina. Forseti landsins segir meginþorra íbúa ekki eiga hefðbundinn bankareikning og muni rafmyntin því auðvelda öll viðskipti í landinu. Gengi Bitcoin sveiflukennt Athygli vekur að El Salvador veiti Bitcoin löggildingu enda hefur hefur gengi rafmyntarinnar verið sveiflukennt allt frá því að henni var komið á laggirnar árið 2008. Undanfarið hefur Bitcoin verið í frjálsu falli og er tímasetning El Salvador því í meira lagi áhugaverð.
Rafmyntir El Salvador Tengdar fréttir Bitcoin og aðrar rafmyntir í frjálsu falli Rafmyntin Bitcoin hefur hrunið í virði í dag. Virði myntarinnar hefur lækkað stöðugt undanfarna fimm daga en botninn virðist taka úr þegar ráðmenn í Kína tilkynntu að herða ætti ólarnar á rafmyntum þar í landi. 19. maí 2021 15:31 Bálkakeðjur gjörbreyta landslaginu Seðlabankar og stórfyrirtæki skoða hagnýtingu á bálkakeðjutækni með því að gefa út rafmyntir bundnar við lögeyri. Framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs segir tæknina geta breytt fjármálakerfinu. 16. maí 2019 06:45 Mest lesið Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Viðskipti innlent Um 550 milljónum deilt til 27 einkarekinna fjölmiðla Viðskipti innlent Daði og Hrefna nýir deildarstjórar hjá Veitum Viðskipti innlent „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ Atvinnulíf Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish Viðskipti innlent Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu Viðskipti innlent Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra Viðskipti innlent Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira
Bitcoin og aðrar rafmyntir í frjálsu falli Rafmyntin Bitcoin hefur hrunið í virði í dag. Virði myntarinnar hefur lækkað stöðugt undanfarna fimm daga en botninn virðist taka úr þegar ráðmenn í Kína tilkynntu að herða ætti ólarnar á rafmyntum þar í landi. 19. maí 2021 15:31
Bálkakeðjur gjörbreyta landslaginu Seðlabankar og stórfyrirtæki skoða hagnýtingu á bálkakeðjutækni með því að gefa út rafmyntir bundnar við lögeyri. Framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs segir tæknina geta breytt fjármálakerfinu. 16. maí 2019 06:45