Álaborg í úrslit eftir sigur gegn frönsku risunum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. júní 2021 15:36 Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Álaborgar, en liði leikur til úrslita í Meistaradeildinni á morgun. Christof Koepsel/Getty Images Álaborg vann í dag frækinn tveggja marka sigur gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Lokatölur 35-33 og Álaborg mætir annað hvort Nantes eða Barcelona í úrslitaleiknum á morgun. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Álaborgar.
Frönsku meistararnir byrjuðu leikinn betur og skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins. Munurinn hélst þrjú til fjögur mörk stærstan hluta fyrri hálfleiks, en það var Álaborg sem skoraði seinasta mark hálfleiksins og minnkaði muninn í tvö mörk. Hálfleikstölur voru því 15-13 PSG í vil og nóg eftir af handbolta. Frakkarnir byrjuðu seinni hálfleikinn eins og þann fyrri og komust fljótt í fimm marka forskot. Danirnir voru ekki á þeim buxunum að leggja árar í bát og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Álaborg náði góðu áhlaupi og skoruðu sjö mörk gegn tveim mörkum PSG og jöfnuðu leikinn. Liðin skiptust á að skora næstu mínútur, en Álaborg náði í fyrsta skipti tveggja marka forskoti þegar þeir breyttu stöðunni í 31-29. Þá skiptust liðin aftur á að skora og munurinn var því eitt til tvö mörk út leikinn. Það voru Danirnir sem skoruðu seinasta mark leiksins og tryggðu sér virkilega sterkan tveggja marka sigur. Arnór Atlason og félagar hans í Álaborg eru því komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar þar sem að þeir mæta annað hvort Nantes eða Barcelona, en úrslitaleikurinn fer fram klukkan 16:00 á morgun.
Danski handboltinn Franski handboltinn Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira