Tyrkir heim stigalausir Anton Ingi Leifsson skrifar 20. júní 2021 17:58 Tyrkir í sárum. Naomi Baker/Getty Images Tyrkland er úr leik á Evrópumótinu þetta árið eftir að þeir töpuðu 3-1 fyrir Sviss í síðustu umferð A-riðilsins. Tyrkir töpuðu því öllum leikjum sínum í mótinu og skoruðu einungis eitt mark. Mikil vonbrigði fyrir þessa miklu fótboltaþjóð. Haris Seferovic kom Sviss yfir á sjöttu minútu og Xherdan Shaqiri tvöfaldaði forystuna með frábæru skoti á 26. mínútu. Irfan Kahveci minnkaði muninn eftir stundarfjórðug í síðari hálfleik en á 68. mínútu skoraði Shaqiri annað mark sitt og þriðja mark Sviss. Sviss var nær því að bæta við fjórða marki sínu og skaut Granit Xhaka meðal annars í stöng en lokatölur 3-1. Sviss endar því með fjögur stig í þriðja sætinu en Wales er í öðru sætinu, einnig með fjögur stig, en betri markahlutfall. Sviss fer þó líklega áfram með einn besta árangurinn af liðunum í þriðja sætinu en Ítalía er á toppnum með níu stig. 👎 - Turkey🇹🇷 finish on 0 points and a goal difference of -7. In the history of the EUROs, only 4 teams had a worse record in a group phase2000 - Denmark (0-8)2004 - Bulgaria (1-9)2012 - Republic of Ireland (1-9)1984 - Yugoslavia (2-10)2020 - Turkey (1-8)#EURO2020 #SUITUR— Gracenote Live (@GracenoteLive) June 20, 2021 Fótbolti EM 2020 í fótbolta