Enska liðið átti í miklum vandræðum með vel skipulagt og duglegt skoskt lið. Harry Kane, fyrirliði enska liðsins og þeirra besti leikmaður, komst aldrei í takt við leikinn og var skipt af velli um stundarfjórðungi fyrir leikslok. Souness kallaði eftir betri frammistöðu frá honum.
„Miðverðirnir áttu auðvelt kvöld gegn honum. Harry Kane lítur út sem skugginn af leikmanninum sem við vitum að hann er. Í tveimur leikjum, líkt og Roy Keane nefnir, hefur hann verið þreytulegur og áhugalaus,“ segir Souness.
Án Kane að spila sinn leik segir Souness að enska liðið eigi litla möguleika á að ná langt.
„Hann er eini leikmaður Englands sem hefur sannað á þessu sviði að hann geti skorað mörk reglulega. Ef það gerist ekki í þessari keppni farið þið ekki langt,“
„Án Harry Kane kemur fótboltinn ekki heim með þetta lið, ég get sagt þér það. Ekki eins og liðið er að spila.“ segir Souness.
„Kane er ótrúlegur leikmaður,“ sagði Roy Keane. „En mér finnst hann ekki góður leiðtogi. Ég sé hann aldrei láta finna fyrir sér, eða láta vita af sér, hjá Spurs. Ég veit að fólk gæti þá sagt 'það er ekki hans persónuleiki' eða að hann geri það í klefanum. En ég held hann geri það ekki og það er stórt vandamál.“ bætti Keane við.
England er gott sem komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar en liðið er með fjögur stig á toppi D-riðils ásamt Tékklandi. Liðin leika úrslitaleik um toppsætið í næstu umferð.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.