Svona virkar algrím Instagram Árni Sæberg skrifar 29. júní 2021 10:23 Margir velta því fyrir sér hvernig Instagram velur röðina sem myndir og myndbönd birtast í. Instagram Adam Mosseri, framkvæmdarstjóri Instagram, setti inn ellefu mínútna langt myndband á dögunum þar sem hann útskýrir hið flókna algrím sem stýrir því hvað við sjáum á miðlinum.
Mosseri ritar við færsluna að fólki finnist erfitt að treysta því sem það skilur ekki. Þess vegna vilji hann varpa ljósi á það hvernig Instagram virkar og af hverju fólk sjái það sem það sér á samfélagsmiðlinum vinsæla. Færsluna má sjá í spilaranum hér að neðan: View this post on Instagram A post shared by Adam Mosseri 🌈 (@mosseri) Hann byrjar myndbandið á því að vara við hversu langt það er enda er það heilar ellefu mínútur. Myndbönd á Instagram eru almennt ekki lengri en um hálf mínúta. Mikilvægasta verkefni algrímsins er að raða efni sem kemur inn á Instagram í rétta röð fyrir hvern og einn notanda. Þegar Instagram fór fyrst í loftið árið 2010 var efninu sem fólk sá á síðunni einfaldlega raðað í tímaröð. Árið 2016 gerðu stjórnendur Instagram sér grein fyrir að notendur misstu af rúmlega 70 prósent þess efnis sem þeir ættu að geta séð á síðunni. Myndum og hringrásum er raðað eftir kúnstarinnar reglum Því var ráðist í að smíða flókið algrím sem gat metið hvað hver notandi vildi helst sjá á sinni síðu. Þegar venjulegum myndum og hringrásum eða „stories“ er raðað á heimasíðu notenda reiðir algrímið sig á þúsundir merkja, mikilvægust þeirra eru: upplýsingar um myndina, upplýsingar um þann sem birti efnið, virkni notandans og samskiptasaga notandans og þess sem birtir myndina. Framleiðendur efnis á Instagram geta nú fylgst með velgengni færslna sinna.Instagram Mosseri segir Instagram nýta þessar upplýsingar til að meta hversu líklegt er að notandi vilji sjá myndir og hringrásir. Þá forðast algrímið að sýna of margar myndir í röð frá sama notanda. Instagram stýrir notendum frá ósæmilegu efni Þegar svokölluðum „Explore“ hluta Instagram er raðað upp er sama algrími beitt og þegar heimasíðunni er raðað. Auk algrímsins er svokölluðum meðmælaviðmiðunarreglum eða „recommendation guidelines“ beitt til að fyrirbyggja að fólk sjái efni sem gæti farið fyrir brjóstið á því. „Þú fylgir ekki fólkinu sem þú sérð í Explore og það breytir stöðunni þegar þú rekst á eitthvað viðkvæmt efni. Ef vinur þinn deilir einhverju móðgandi er það bara á milli ykkar. Ef þú sérð eitthvað móðgandi í Explore, frá einhverjum sem þú hefur aldrei heyrt um, er það annað mál.“ segir Mosseri. Svokölluðum „Reels“ er raðað upp sem sama hætti og „Explore“ að viðbættri áherslu á að skemmta notandanum. „Við spyrjum fólk hvort því finnist ákveðin „Reel“ skemmtileg eða fyndin. Svörin nýtum við til að meta hvað skemmtir fólki, með sérstakri áherslu á minni framleiðendur efnis,“ segir Mosseri. Instagram kynnti svokölluð Reels í fyrra. Reels eru stutt myndbönd sem aðgengileg eru öllum notendum miðilsins.NurPhoto/Getty Mosseri útskýrir einnig hvers vegna efni er tekið niður af Instagram. Hann játar að það sé ekki alltaf ljóst hvers vegna efni er tekið niður og að hann skilja að það valdi fólki ruglingi og særindum. „Við meðhöndlum milljónir tilkynninga á dag, sem þýðir að ef við gerum mistök í meðferð smás hluta þeirra, hefur það áhrif á þúsundir manns. Þá bætti hann við að Instagram vinni að betri tilkynningum og útskýringum til þeirra notenda hverra efni er fjarlægt af miðlinum.
Samfélagsmiðlar Tækni Facebook Stafræn þróun Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira