„Hún byrjar á að tala um að hún sé hreinlega búin að ljúga að umheiminum og að henni líði bara hreinlega hræðilega illa og að henni sé haldið fanginni heima hjá sér og fái ekkert um sitt líf að segja.“
Britney talar um mansal í ræðu sinni, en hljóðupptakan var aðgengileg í beinni og fór kjölfarið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Fjölskylda söngkonunnar hefur notfært sér frægð hennar og fjármuni og gæti því málið talist sem ákveðin tegund af mansali að mati Elvu Bjargar.
„Ég held að það séu komin þrettán ár af þessu.“
Eðlilegt að vera í uppnámi
Söngkonan talaði um að hún vildi helst kæra föður sinn og þráir að fá frelsi til að ráða lífi sínu sjálf.
„Ég hlustaði á þetta live og mér fannst hún þónokkuð skýr. Ég er aðeins búin að heyra í umræðunni að fólki fannst hún tala of hratt.“
Það þurfti að skrifa niður allt sem hún sagði svo því var Britney beðin að hægja aðeins tali sínu. Elva Björg er ekki sammála því að vitnisburðurinn muni skaða mál söngkonunnar. Eins og kom fram hér á Vísi telja Bandarískir lögmenn telja að tilfinningalegt uppnám söngkonunnar í málflutningi sínum fyrir dómstólum hafi ekki verið henni til hagsbóta.
„Auðvitað er konan í uppnámi, hvað annað, þú ert búin að vera frelsissvipt í þrettán ár. Það sem er líka svolítið áhugavert í þessu er að þetta er alveg gríðarlega erfitt. Það er erfitt að losna undan þessu frelsissvipta ákvæði sem hún er föst undir.“
Lengi að komast á #FreeBritney vagninn
Elva Björg segir að fyrst að svona fræg og valdamikil kona geti lent í þessu, sé þetta sannarlega líka að gerast fyrir fólk í jaðarsettari hópum, fólk með minni völd.
„Ég held að þetta sé staðan. Þetta er samsæriskenning sem er sönn. Ég trúi venjulega ekki á samsæriskenningar og var lengi sjálf að koma mér á #FreeBritney vagninn. Ég bara trúði því ekki að þetta væri hægt.“
Ekki er vitað hver niðurstaða málsins verður og Elva Björg hræðist að ekkert gerist í máli söngkonunnar.
„En nú heyrðum við í fyrsta skipti hvað hún er að segja.“
Viðtalið má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.