Lífið

Vara­þing­maður ætlar að kenna ný­liðum á sveita­balla­menninguna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tjaldstæðið í Ögri á fallegu íslensku sumarkvöldi í júlí. Allir að gera sig klára fyrir ball.
Tjaldstæðið í Ögri á fallegu íslensku sumarkvöldi í júlí. Allir að gera sig klára fyrir ball. Ögurballið

Hið árlega Ögurball verður haldið í Ögri við Ísafjarðardjúp laugardaginn 17. júlí. Aðgöngumiða fylgir tjaldstæði, aðgangur að sveitaballinu og rabarbaragrautur með rjóma. Hátíðin byrjar með barsvari föstudagskvöldið 16. júlí, fylgt eftir með brennu og brekkusöng um kvöldið.

Á laugardegi verður söguganga um svæðið sem endar með messu í Ögurkirkju. Krakkaball verður haldið seinnipartinn í samkomuhúsinu og svo er sjálft Ögurballið um kvöldið. Stuðbandið Halli og Þórunn spila fyrir dansi eins og þau hafa gert síðustu 22 ár. Næg tjaldstæði eru á svæðinu og vakin athygli á 18 ára aldurstakmarki inn á svæðið, segir í tilkynningu vegna viðburðarins.

Andlit Ögurballsins, sem er opinber sendiherra viðburðarins, er Mosfellingurinn Una Hildardóttir.

„Ég sem unnandi alvöru sveitaballa get ekki annað en þegið þennan merka titil, ætla að standa undir honum sem felst aðallega í að skemmta mér og öðrum sem best og leiðbeina nýliðum í sveitaballamenningu um góða siði“.

Una átti að vera andlit Ögurballsins í fyrr en þá þurfti að slá ballið af vegna kórónuveirufaraldursins.

Una Hildardóttir er varaþingmaður Vinstri grænna.Vísir/Hanna

Thelma Rut Hafliðadóttir er einn skipuleggjenda.

„Löng hefð fylgir þessu fornfræga balli en fyrir tíma nútíma samgangna gerðu Djúpmenn sér ferð í Ögur til að sletta úr klaufunum, oftast sjóleiðina og dönsuðu fram á morgun. Ballgestir fengu svo rabarbaragraut með rjóma áður en þeir fengu ferðaleyfi heim. Við höldum í hefðina, og grautinn geri ég með uppskrift ömmu minnar Maju í Ögri og rjóminn kemur frá bændunum á Erpsstöðum í Dölum,“ segir Thelma Rut.

„Ögurballið er einn vinsælasti viðburður sumarsins á Vestfjörðum, verður vonandi svo um ókomin ár og er alltaf jafn gaman að taka þátt í“.

Myllumerki Ögurballsins, sem haldið hefur verið nánast árlega frá árinu 1926, er #ögurball, finna má viðburðinn á Facebook og fylgjast með á Instagram @ogurball.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.