Luka Doncic með stig á mínútu í stórsigri á heimamönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2021 08:35 Luka Doncic skorar eina af körfum sínum í leiknum í nótt. AP/Eric Gay Luka Doncic og félagar í slóvenska körfuboltalandsliðinu áttu ekki í miklum erfiðleikum með að landa sínum öðrum sigri á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt.
Slóvenar unnu þá 35 stiga sigur á Japan, 116-81, en þeir höfðu unnið Argentínumenn í fyrsta leik sínum. Þetta eru fyrstu Ólympíuleikar Slóvena síðan þeir fengu sjálfstæði frá Júgóslavíu.Sigur Slóvena var mjög öruggur en þeir unnu alla fjóra leikhlutana og gátu leyft sér að hvíla leikmenn fyrir frekari átök á leikunum. Luka Doncic skoraði 25 stig á rúmum 25 mínútum í leiknum og var að auki með 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Doncic hitti reyndar aðeins úr 2 af 8 þriggja stiga skotum sínum en nýtti 6 af 7 skotum inn fyrir línuna. Doncic er núna búinn að spila 58 mínútur á leikunum og hefur skorað á þeim 73 stig auk þess að taka 18 fráköst og gefa 12 stoðsendingar. Zoran Dragic var líka næstum því með stig á mínútu en hann skoraði 24 stig á rúmum 25 mínútum. Rui Hachimura, sem spilar með Washington Wizards í NBA-deildinni, var langstigahæstur í japanska liðinu með 34 stig en hann skoraði tvöfalt meira en næsti maður. Lokaleikur Spánverja í riðlakeppni leikanna er á móti Spánverjum. Japanir stóðu mun meira í spænska liðinu en því slóvenska.
Körfubolti Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Golf Fleiri fréttir Mark Cuban mættur aftur Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Uppgjörið: Keflavík - ÍA 96-72| Sigur Keflavíkur aldrei í neinni hættu Meistararnir stungu af í seinni Uppgjörið: ÍR - Grindavík 78-86 | Tveimur hent úr húsi en toppliðið heldur flugi KR - Njarðvík 88-97 | Dýrmætur sigur gestanna ÍA sækir Kanann sem Ármann losaði Extraleikarnir: Mættu báðir með markvörð úr silfurliðinu í Peking „Heimskuleg taktík hjá mér“ Sátt eftir fyrsta landsleikinn: „Vá, ég er eiginlega orðlaus“ Uppgjörið: Ísland - Serbía 59-84 | Löguðu erfiða stöðu Elvar með sautján stig gegn sínu gamla félagi Martin stoðsendingahæstur í sigri Nýtt fyrirkomulag á vali leikmanna í stjörnuleik NBA „Þjálfun snýst um samskipti“ Rebekka Rut spilar fyrsta landsleikinn í kvöld Ármenningar leggja árar ekki í bát og leita að nýjum Kana „Mér finnst við vera að taka skref í rétta átt fyrir framtíðina“ Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Stjórinn sem skipti Doncic frá Dallas missir starfið Bæði Florída-liðin unnu á flautukörfu í nótt og svona fóru þau að því Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin Sjá meira