Hitastigið hefur náð allt að 45 gráðum og bylgjunni hafa fylgt miklir þurrkar. Tveir hafa verið handteknir fyrir að kveikja elda vísvitandi.
Undanfarna daga hafa fjölmargir gróðureldar kviknað á Grikklandi og margir þeirra í grennd við Aþenu, höfuðborg landsins. Þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín en mikill hiti og vindur hefur gert slökkviliðsmönnum erfitt fyrir.
Vindurinn og þurrkur hefur einnig leitt til þess að eldar hafa farið hratt yfir og fólk hefur haft lítinn fyrirvara til að flýja þá.
Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands, líkti þessu sumri við martröð í samtali við slökkviliðsmenn í gær. Hann sagði helsta markmið ríkisstjórnar sinnar vera að bjarga mannslífum. Þá hét hann því að allt skóglendi sem hefði brunnið yrði ræktað á nýjan leik.
Her Grikklands hefur verið kallaður út til að takast á við eldana og önnur ríki hafa einnig sent slökkviliðsmenn og búnað.
Einn slökkviliðsmaður dó á föstudaginn eftir að rafmagnsstaur féll á hann en þar að auki hafa eldarnir valdið gífurlegu tjóni og mögulega fleiri dauðsföllum.
Nokkrir hafa verið handteknir fyrir að kveikja elda og þar á meðal tveir sem taldir eru hafa kveikt elda vísvitandi. Annar þeirra var handtekinn nærri Aþenu í gær og er sakaður um að hafa kveikt elda í tveimur lautum og fjórum ruslagámum, samkvæmt AP fréttaveitunni.
Eitthvað hefur dregið úr eldunum við Aþenu frá því í gær en þúsundir hafa þó þurft að flýja frá eyjunni Eviu en þar hafa eldar einnig logað síðustu daga. Þeir tóku þó kipp í gærkvöldi svo rýma þurfti fjölda þorpa.
Íbúar segjast hafa tapað öllu í eldunum.
Eldar loga víða um heim þessa dagana. Meðal annars má nefna á Ítalíu, í Bandaríkjunum, Norður-Makedóníu, Tyrklandi, Kanada og Síberíu.