Titill í fyrsta leik Arons með Aalborg Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. ágúst 2021 20:12 Aron Pálmarsson spilaði sinn fyrsta leik með nýju liði í kvöld. EPA-EFE/ANDREAS HILLERGREN Aron Pálmarsson spilaði sinn fyrsta leik með nýju liði þegar hann og félagar hans í Aalborg unnu átta marka sigur gegn Mors Thy í danska Ofurbikarnum, 33-25.
Danski Ofurbikarinn er sambærilegt við Meistarar meistaranna hér á Íslandi þar sem að bikarmeistararnir mæta dönsku landsmeisturunum. Aron Pálmarsson gekk til liðs við Aalborg í sumar, og það er óhætt að segja að hann hafi byrjað feril sinn í dönsku deildinni á jákvæðum nótum. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var munurinn aldrei meiri en þrjú mörk. Þegar að flautað var til hálfleiks höfðu Aron og félagar eins marks forskot, 15-14. Þeir mættu hinsvegar grimmari til leiks í seinni hálfleik og náðu fljótt fimm marka forskoti. Leikmenn Mors Thy náðu að klóra í bakkann, en náðu aldrei að brúa bilið almennilega og Aalborg jók forskot sitt aftur jafnt og þétt. Að lokum unnu Aron og félagar öruggan átta marka sigur, 33-25, og fyrsti titill Arons í búningi Aalborg kominn í hús. Aron skoraði eitt mark í kvöld, en markahæstur í liði Aalborg var Buster Juul með sex mörk. Í liði Mors Thy var það Bjarke Christensen sem var allt í öllu og skoraði tíu mörk.
Danski handboltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira