Erlent

Flugvöllum seinkar og sá þriðji líklega styttur

Kristján Már Unnarsson skrifar
Teikning af fyrirhugaðri flugstöð í Nuuk.
Teikning af fyrirhugaðri flugstöð í Nuuk. Kalaallit Airports

Bakslag er komið í flugvallaframkvæmdirnar á Grænlandi, stærstu innviðauppbyggingu í sögu landsins. Tilkynnt hefur verið um ársseinkun á völlunum í Nuuk og Ilulissat á sama tíma og horfur eru á að þriðji flugvöllurinn, í Qaqortoq, verði minnkaður í sparnaðarskyni.

Flugvallafélag grænlensku landsstjórnarinnar, Kalaallit Airports, tilkynnti í vikunni að opnun nýrrar 2.200 metra flugbrautar í Nuuk myndi frestast til ársins 2024, en áður var búið að skýra frá samsvarandi seinkun í Ilulissat. Til stóð að flugvellirnir yrðu tilbúnir árið 2023, sem og nýr 1.500 metra flugvöllur í Qaqortoq, en þar hafa framkvæmdir enn ekki hafist.

Opnun nýs flugvallar í Nuuk frestast um eitt ár, til ársins 2024, miðað við nýjustu tilkynningu grænlenskra flugvallayfirvalda.Kalaallit Airports

Í fréttatilkynningu er seinkunin einkum rakin til afleiðinga covid-19 faraldursins. Einnig hafi umfang verksins aukist með nýjum kröfum um búnað og aðstöðu, eins og um miðlínuljós í flugbraut og aðflugsljós. Þá hefur flugvallafélagið neyðst til að slá viðbótarlán upp á átján milljarða íslenskra króna til að mæta umframkostnaði.

Flugvellirnir þrír. Framkvæmdir eru hafnar í Nuuk og Ilulissat en óvissa er um Qaqortoq.Stöð 2/Google Earth.

Í vikunni var einnig birt skýrsla sem stjórnvöld létu gera um valkosti til að draga úr kostnaði við nýjan flugvöll í Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Búið er að bjóða verkið út tvisvar en í bæði skiptin reyndust tilboð nærri tvöfalt hærri en sá fjórtán milljarða króna fjárhagsrammi sem grænlensk stjórnvöld höfðu markað verkefninu.

Í skýrslunni eru bornir saman möguleikar á að stytta brautina úr 1.500 metrum niður í 1.199 metra, 1.000 metra eða jafnvel 799 metra, samtímis því að minnka flugstöðina.

Qaqortoq-flugvöllur var upphaflega hannaður með nægilega langri flugbraut fyrir smærri farþegaþotur eins og Airbus A220. Núna stefnir í að flugbrautin verði höfð styttri.Kalaallit Airports

Fyrir Icelandair skiptir niðurstaðan máli upp á það hvaða flugvélartegundir verður hægt að nota í Grænlandsflugi félagsins. Þannig þurfa Bombardier Q200-vélarnar 1.000 metra braut meðan Q400-vélarnar þurfa 1.300 -1.400 metra braut. Í skýrslunni er þó bent á Q400-vélar Icelandair geti með takmörkuðu burðarþoli notað 1.200 metra braut. Boeing 737 max-þoturnar gætu síðan notað brautirnar í Nuuk og Ilulissat með 2.200 metra lengd.

Naaja Nathanielsen er ráðherra innviða Grænlands.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Samgönguráðherrann Naaja Nathanielsen segir í viðtali við Sermitsiaq að sér sýnist að 1.199 metra löng braut geti verið góður valkostur í Qaqortoq, þá með möguleika á lengingu í framtíðinni. Hún muni þó freista þess að ná breiðri samstöðu um málið á þjóðþinginu. Lagabreytingu þarf til þar sem 1.500 metra braut í Qaqortoq hafði verið áskilin í lögum um flugvallaframkvæmdirnar.


Tengdar fréttir

Óvíst um gerð þriðja nýja flugvallarins á Grænlandi

Horfur eru á að Grænlendingar verði að sætta sig við að fá bara tvo nýja alþjóðflugvelli að sinni en ekki þrjá, eins og að var stefnt. Vegna fjárskorts hafa grænlensk stjórnvöld neyðst til að fresta gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×