Viðskipti erlent

Allianz til rannsóknar í Þýskalandi og Bandaríkjunum

Samúel Karl Ólason skrifar
Umfang rannsóknarinnar í Þýskalandi er sögð hafa aukist að undanförnu.
Umfang rannsóknarinnar í Þýskalandi er sögð hafa aukist að undanförnu. EPA/MARC MUELLER

Yfirvöld í Þýskalandi hafa Allianz, eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins til rannsóknar. Rannsóknin snýr að fjárfestingarsjóðum fyrirtækisins í Bandaríkjunum sem margar lögsóknir þar í landi snúa að þessa dagana.

Mikið fé tapaðist úr sjóðunum í fyrra.

Sjóðirnir eru einnig til rannsóknar í Bandaríkjunum og forsvarsmenn fyrirtækisins vöruðu nýverið við því að sú rannsókn gæti haft verulega áhrif á hagnað Allianz. ­Margir fjárfestar hafa höfðað mál gegn Allianz og segja fyrirtækið hafa tapað um sex milljörðum dala af þeirra peningum, samkvæmt frétt Bloomberg.

Það sem verið er að skoða í Þýskalandi er hvað yfirmenn fyrirtækisins vissu um sjóðina í Flórída. Reuters segir að umfang fjármálaeftirlitsins í Þýskalandi (BaFin) hafi aukist að undanförnu.

Um er að ræða nokkra sjóði sem áttu að vera tiltölulega öruggir og veita fjárfestum vernd gegn hruni á mörkuðum. Þegar markaðir lækkuðu vegna faraldurs kórónuveirunnar urðu fjárfestingarsjóðirnir fyrir miklu tapi.

Einn sjóður skrapp saman um áttatíu prósent. Tveimur sjóðanna var lokað í mars í fyrra og Allianz vinnur að því að loka þeim sem eftir eru. Sjóðirnir tveir sem búið er að loka voru 2,3 milljarða dala virði í lok árs 2019.

Alls er er búið að höfða 25 dómsmál gegn Allianz vegna sjóðanna. Lögmenn fyrirtækisins hafa sagt að fjárfestarnir hafi verið meðvitaðir um hættuna sem fjárfestingar fela í sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×