Erlent

Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af bráðabirgðastjórninni

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Áhyggjur eru uppi vegna stöðu kvenna og stúlkna nú þegar talíbanar hafa tekið völd í landinu.
Áhyggjur eru uppi vegna stöðu kvenna og stúlkna nú þegar talíbanar hafa tekið völd í landinu. epa/Hedayatullah Amid

Bandarísk stjórnvöld segjast hafa áhyggjur af nýskipaðri bráðabirgðastjórn í Afganistan sem talíbanar kynntu til sögunnar í gær.

Utanríkisáðuneytið segist nú vera að meta stöðuna en nýja stjórnin er leidd af Mullah Mohammad Hassan Akhund, sem er á svörtum lista hjá Sameinuðu þjóðunum og þá er innanríkisráðherrann Sirajuddin Haqqani eftirlýstur af bandarísku alríkislögreglunni.

Hann leiðir Haqqani-sveitirnar sem gert hafa mannskæðar árásir á bandaríska ríkisborgara í gegnum árin. 

Nokkuð hefur borið á mótmælum í Afganistan vegna valdatöku talíbana og í gær voru þrír mótmælendur skotnir til bana í borginni Herat í vesturhluta landsins. Þá var einnig skotið á mótmælendur í höfuðborginni Kabúl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×