Skoðun

Stöndum með ungu fólki

Fjóla Hrund Björnsdóttir og Brynjólfur Þorkell Brynjólfsson skrifa

Málefni ungs fólks eru okkur í Miðflokknum hugleikin en það er ekki hægt að segja að þau hafi endilega verið ofarlega á baugi í þessari baráttu. Það eru mörg málefni sem snerta ungt fólk og margt má betur fara, þetta höfum við orðið rækilega var við í kosningabaráttunni enda lagt okkur eftir að hlusta á og hitta ungt fólk. Þeirra er framtíðin og öll þróuð lýðræðisþjóðfélög leggja sig eftir að tryggja ungu fólki tækifæri og stuðning.

Eignir fyrir alla

Ein stærsta fjárfesting einstaklinga í lífinu er kaup á fasteign. Fólk á að fá tækifæri til að eignast sitt eigið heimili en síðustu ár hefur fasteignaverð hækkað skarpt og þar af leiðandi orðið erfiðara fyrir fólk að koma inn á markaðinn og eignast sína fyrstu fasteign.

Við í Miðflokknum viljum að ríkið veiti mótframlag sem gefur öllum tækifæri á að eignast eigið húsnæði. Með mótframlaginu er átt við svokallað hlutdeildarlán, þar sem allir fái tækifæri til þess að fá mótframlag frá ríkinu, en ekki nokkrir útvaldir á ári eins og er nú í dag. Þetta er algert lykilatriði til að tryggja ungu fólki leið inn á fasteignamarkað. Um leið viljum við í Miðflokknum að almenningur fái heimild til að setja 3,5% af lífeyrisiðgjaldi sínu í sjóð sem nýta má til eigin fasteignakaupa. Þessar aðgerðir ættu að geta aðstoðað marga sem sjá enga leið út úr vandanum núna. En Miðflokkurinn er með fleiri aðgerðir í smíðum sem eiga að auðvelda fasteignakaup. Það þarf að stuðla að auknu lóðaframboði, fjölbreyttara húsnæði, hvetjandi regluverk, lægri skatta og gjöld og afnema stimpilgjaldið.

Framtíð náms á Íslandi

Um langt árabil hafa stúdentar gagnrýnt Menntasjóð námsmanna. Það kemur ekki til af góðu. Það er staðreynd að lánin eru óhagstæð og framfærslan og frítekjumarkið er allt of lágt. Nemendum er refsað fyrir að stunda vinnu meðfram námi. Við þetta verður ekki búið að mati okkar Miðflokksmanna enda eiga nemendur að geta tekið hagstæð námslán sem verða ekki byrði á þeim að loknu námi. Jafnrétti til náms er lykilatriði.

Það er mikilvægt að tengja námi og atvinnulíf og við í Miðflokknum viljum stuðla að auknu samstarfi þar á milli. Það á að vera hvetjandi fyrir atvinnulífið að ráða inn sumarstarfsmenn sem myndu ganga að starfi hjá fyrirtækinu að loknu námi. Með þessu fá nemendur innsýn í atvinnulífið, eru betur undirbúnir að loknu námi og geta gengið að starfi sem þeir hafa reynslu og þekkingu á. Fyrirtækin munu fá betri starfsmenn.

Eflum langskólanám

Háskólarnir eru gríðarlega mikilvægir, ekki aðeins sem menntastofnanir heldur sem miðstöðvar þekkingar og nýsköpunar. Við verðum því að hlúa vel að þeim en um leið gera miklar kröfur til þeirra um gæði og samkeppnishæfni náms. Háskólarnir íslensku eiga að vera samkeppnishæfir við bestu háskóla erlendis.

En það þarf að styrkja annað en bara háskólanna. Við í Miðflokknum leggjum áherslu á að allir þeir sem vilja stunda tækni- og iðnnám fái tækifæri til þess. Menntakerfið verður að vera betur undir búið að taka á móti þeim fjölda sem sótt hefur um nám.

Ungt fólk á að hafa sterka rödd inn á Alþingi og kröftuga málsvara sem bera hag þeirra fyrir brjósti. Atkvæði til Miðflokksins gagnast ungu fólki og baráttumálum þeirra.

Fjóla Hrund Björnsdóttir skipar 1. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Brynjólfur Þorkell Brynjólfsson skipar 3. sæti á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×