Sara staðfestir þátttöku sína í eyðimerkurmótinu á aðventunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. september 2021 08:30 Sara Sigmundsdóttir er hér í hlutverki fyrirsætu að kynna nýja vörulínu sína og WIT Fitness. Instagram/@sarasigmunds Sara Sigmundsdóttir mun væntanlega keppa á sínu fyrsta CrossFit móti í desember eftir krossbandsslitið í mars. Hún staðfesti um helgina þátttöku sína á Dubai CrossFit Championship.
Sara tók risaskref í rétta átt um helgina þegar hún ákvað að setja sér formlega það markmið að snúa til baka áður en árið er liðið. Instagram síða Dubaí mótsins tilkynnti um staðfestingu Suðurnesjamærinnar og sagði: Velkomin til baka Sara. Sara staðfesti það síðan á sinni síðu skömmu síðar. „Í dag er ég bæði svo þakklát fyrir og ánægð með að geta tilkynnt það að ég hef þáð boðið,“ skrifaði Sara á síðu sína en aðeins bestu CrossFit konum og körlum var boðin þátttaka á mótinu í ár. View this post on Instagram A post shared by Sara Sigmundsdo ttir (@sarasigmunds) „Ég tek það þó fram að ég er að æfa undir vökulum augum þjálfara míns og sjúkraþjálfara og ég mun ekki taka neina áhættu,“ skrifaði Sara. „Ég krosslegg bara fingurna að ég verði tilbúin. Það eru bara tvær vikur eftir af endurhæfingunni og svo byrjum við vinnuna,“ skrifaði Sara. Dubai CrossFit Championship fer fram 16. til 18. desember næstkomandi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Sara missti af öllu 2021 tímabilinu vegna meiðsla en hún endar samt árið inn á keppnisgólfinu sem er táknrænt fyrir hversu staðráðin hún var að koma sterkari til baka. Sara sleit krossband í mars og fór í aðgerð 12. apríl síðastliðinn. Það verða því aðeins átta mánuðir liðnir frá aðgerð þegar Sara keppir á sínu fyrsta móti eftir meiðslin. Nákvæmlega munu líða 248 dagar frá því að hún vaknaði úr svæfingunni þar til að hún stígur fram og keppir í fyrstu grein mótsins. Það er ef allt gengur upp hjá henni á æfingunum á næstu tveimur og hálfum mánuði. Sara hefur líka titil að verja í Dúbaí því hún vann mótið þegar það fór fram síðast árið 2019. Dubai CrossFit Championship var aflýst í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins.
CrossFit Tengdar fréttir Þrjár vikur í græna ljósið hjá Söru Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir er farin að telja niður í þá stund sem hún má fara að taka almennilega á því í lyftingarsalnum. 23. september 2021 08:31 Sara: Engin stelpa á að þurfa að vera hrædd við að vera sterk eins og ég var Íslenska CrossFit stjarnan Sara Sigmundsdóttir kynnti nýju vörulínu sína í London á dögunum og þar kom líka fram að hennar markmið er ekki aðeins að standa sig á gólfinu heldur líka breyta viðhorfi fólks. 15. september 2021 08:31 Sara horfðist í augu við óttann og gerði aftur æfinguna afdrifaríku Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir er á fullu í endurhæfingu sinni eftir krossbandsslit. Hún tók risaskref í rétta átt í gær. 13. ágúst 2021 08:30 Erfitt ár varð enn erfiðara fyrir Söru: „Mílovsjú you Molinn minn“ Árið 2021 ætlar heldur betur að reyna á íslensku CrossFit konuna Söru Sigmundsdóttur sem greindi frá því á samfélagmiðlum um helgina að hún hafi missti Mola sinn á dögunum ofan á það að hafa misst af öllu CrossFit tímabilinu vegna krossbandsslits. 5. júlí 2021 08:31 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira
Þrjár vikur í græna ljósið hjá Söru Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir er farin að telja niður í þá stund sem hún má fara að taka almennilega á því í lyftingarsalnum. 23. september 2021 08:31
Sara: Engin stelpa á að þurfa að vera hrædd við að vera sterk eins og ég var Íslenska CrossFit stjarnan Sara Sigmundsdóttir kynnti nýju vörulínu sína í London á dögunum og þar kom líka fram að hennar markmið er ekki aðeins að standa sig á gólfinu heldur líka breyta viðhorfi fólks. 15. september 2021 08:31
Sara horfðist í augu við óttann og gerði aftur æfinguna afdrifaríku Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir er á fullu í endurhæfingu sinni eftir krossbandsslit. Hún tók risaskref í rétta átt í gær. 13. ágúst 2021 08:30
Erfitt ár varð enn erfiðara fyrir Söru: „Mílovsjú you Molinn minn“ Árið 2021 ætlar heldur betur að reyna á íslensku CrossFit konuna Söru Sigmundsdóttur sem greindi frá því á samfélagmiðlum um helgina að hún hafi missti Mola sinn á dögunum ofan á það að hafa misst af öllu CrossFit tímabilinu vegna krossbandsslits. 5. júlí 2021 08:31