Opnunarmynd RIFF í ár, Versta mannaeskja í heimi, var svo sýnd fyrir fullum sal í Gamla bíói.
Í dag mun Mia Hansen-Løve einn heiðursgesta hátíðarinnar svara spurningum eftir sýningar á verkum sínum, Eden, kl. 17:00 og, Bergman eyju, kl. 18.45 í Bíó Paradís.
„Stórviðburður helgarinnar er auðvitað Samtal við Debbie Harry, sem fer fram í Háskólabíó á laugardaginn 2. október kl. 17.00. Stórsöngkona sveitarinnar Blondie verður viðstödd sýningu glænýrrar stutttónleikamyndarinnar Blondie: Vivir en la Habana, ásamt leikstjóranum Rob Roth, og mun þau ræða um lífið og listina við Andreu Jóns útvarpskonu og rithöfundinn Berg Ebba. Miðasala er enn fullum í gangi en miðinn kostar litlar 2900 krónur,“ segir í tilkynningu frá RIFF.
Bílabíó hefst með trompi en söngvamyndin Mamma Mia! er sýnd í kvöld klukkan 20:00. Á laugardaginn verður Sítt að aftan kvöld klukkan 20:00 með sýningu á áttutvíhleypunni a-ha: Bíómyndin og Blondie: Að lifa í Havana. Íslenskur sunnudagur tekur við með sýningum á Lói – þú flýgur aldrei einn kl. 18;00 og Ég man þig kl. 20:00. Bílabíóið er staðsett á bílaplani Samskipa á horni Holtavegs og Barkarvogar. Miðaverð er 3.000 krónur á hvern bíl.
Vínsmökkunarbíó í Norræna húsinu. Á laugardaginn kl. 18:00 er sýnd Blind Ambition, stórskemmtileg heimildarmynd um fjóra flóttamenn frá Zimbabwe sem stefna á alþjóðlegu heimsmeistarkeppnina í vínsmökkun. Eftir sýningu gefst áhorfendum tækifæri til að smakka ýmis vín og giska uppruna þeirra. Haldið í samstarfi við Jacob’s Creek.
Saga Borgarættarinnar (1920), fyrsta kvikmyndin í fullri lengd til að vera tekin upp á Íslandi, er sýnd í endurbættri útgáfu með nýrri tónlist í Bíó Paradís klukkan 15:00 á sunnudaginn 3. október, en samtímis er hún sýnd á Akureyri og Seyðisfirði í tilefni af hundrað ára afmæli myndarinnar.
„Uppselt er í hið feykivinsæla sundbíó. Hefðbundin dagskrá er komin í fullt gang í Bíó Paradís og er mikil tilhlökkun fyrir komandi bíóhelgi!“