Innlent

Skjálfti 3,3 að stærð

Atli Ísleifsson skrifar
Upptök skjálfta síðustu daga hafa verið suðsuðvestur af Keili.
Upptök skjálfta síðustu daga hafa verið suðsuðvestur af Keili. Vísir/Vilhelm

Skjálfti 3,3 stærð var við Keili klukkan 7:17 í morgun og fannst hann víða í byggð.

Á vef Veðurstofunnar segir að upptök skjálftans hafi verið 1,3 kílómetra suðsuðvestur af Keili.

Um klukkan 2:15 í nótt varð skjálfti 3,0 að stærð með upptök 1,1 kílómetra suðsuðvestur af Keili.

Hrina hófst á þessum slóðum þann 27. september og hafa um 6.200 skjálftar mælst á svæðinu, þar af tólf yfir 3,0 að stærð.

Stærsti skjálftinn mældist 4,2 þann 2. október klukkan 15:32, en skjálftarnir hafa fundist víða á Reykjanesskaganum og á suðvesturhorninu.


Tengdar fréttir

Einn upp á þrjú stig í nótt

Enn skelfur jörð í grennd við Keili og í nótt klukkan kortér yfir tvö kom skjálfti sem mældist þrjú stig að stærð. Sá var á 5,6 kílómetra dýpi og átti hann upptök sín 1,1 kílómetra SSV af Keili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×