Stærsta tap Bayern í 45 ár Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2021 23:00 Thomas Müller og félagar hans í Bayern hafa aldrei upplifað annað eins tap. Lars Baron/Getty Images Bayern München tapaði óvænt 5-0 er liðið mætti Borussia Mönchengladbach í þýsku bikarkeppninni í kvöld, en þetta var stærsta tap félagsins síðan í október 1976.
Heimamenn í Mönchengladbach tóku forsytuna strax á þriðju mínútu, og staðan var orðin 3-0 eftir rétt rúmlega tuttugu mínútna leik. Breel Embolo bætti svo tveimur mörkum við í seinni hálfleik og niðurstaðan varð 5-0 sigur heimamanna. Það sem er kannski merkilegast við sigur Mönchengladbach er að liðið átti aðeins sex skot á markið og fimm þeirra enduðu í netinu. Þýsku meistararnir áttu fleiri skot en heimamenn og voru meira með boltann, en náðu ekki að koma honum í netið. Eins og áður segir var þetta stærsta tap Bayern síðan 1976, en þann 9. október það ár tapaði liðið 7-0 gegn Schalke í þýsku úrvalsdeildinni. Það tap er það stærsta í sögu félagsins. Þetta var aðeins annað tap Bayern undir stjórn Julian Nagelsmann, en hann tók við liðinu í byrjun júlí á þessu ári. Nagelsmann var reyndar ekki viðstaddur, en hann er í sóttkví eftir að hafa greinst með kórónaveiruna.
Þýski boltinn Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport Í beinni: Arsenal - Nottingham Forest | Skytturnar mæta spútnikliðinu Enski boltinn Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Enski boltinn Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Körfubolti Fleiri fréttir Í beinni: Milan - Juventus | Gamla konan enn taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Í beinni: Arsenal - Nottingham Forest | Skytturnar mæta spútnikliðinu Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Sædís og félagar fyrstar til að stoppa Bæjara Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Sjá meira