Stórmeistarajafntefli á San Siro 7. nóvember 2021 21:45 Hart barist í Mílanó í kvöld. vísir/Getty Nágrannarnir AC Milan og Internazionale skildu jöfn í toppslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Inter fékk vítaspyrnu strax á 11.mínútu og Tyrkinn Hakan Calhanoglu skoraði úr spyrnunni en hann færði sig um set frá AC Milan til Inter síðasta sumar. Nokkrum mínútum síðar varð Stefan De Vrij, varnarmaður Inter, fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og jafna metin fyrir AC Milan. Inter fékk aðra vítaspyrnu á 27.mínútu en þó Calhanoglu hafi skorað úr sinni spyrnu var Lautaro Martinez sendur á vítapunktinn í þetta skiptið. Argentínski sóknarmaðurinn brenndi af spyrnunni og staðan því jöfn í leikhléi. Ekkert mark var skorað í síðari hálfleik og lokatölur því 1-1. AC Milan enn taplaust og hefur 32 stig eftir tólf leiki, líkt og Napoli sem er á toppnum á betri markatölu. Inter með sjö stigum minna í 3.sæti deildarinnar. Ítalski boltinn
Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ Enski boltinn
Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli: Lék eftir samtal á skrifstofu Óskars Hrafns Íslenski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn
Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ Enski boltinn
Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli: Lék eftir samtal á skrifstofu Óskars Hrafns Íslenski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn