Viðskipti erlent

Vilj­a þreif­a á sýnd­ar­heim­um fram­tíð­ar­inn­ar

Samúel Karl Ólason skrifar
Frumgerð af hanska Reality labs. Með tæki sem þessu eiga netverjar að geta snert stafræna hluti í sýndarveruleika og jafnvel tekið í hendur hvors annars á netinu.
Frumgerð af hanska Reality labs. Með tæki sem þessu eiga netverjar að geta snert stafræna hluti í sýndarveruleika og jafnvel tekið í hendur hvors annars á netinu. Reality labs

Síðastliðin sjö ár hafa starfsmenn Reality Labs, dótturfyrirtækis Meta (áður Facebook), unnið að því að svara þeirri spurningu hvernig fólk á að skynja sýndarheima framtíðarinnar. Hvernig fólk eigi að snerta stafræna hluti og jafnvel annað fólk.

Með það í huga hafa áðurnefndir starfsmenn þróað hanska sem gera á fólki kleift að finna fyrir því þegar það snertir hluti í sýndar- og viðbótarveruleika.

Tækniþróun þessi er ekki langt á veg komin en í tilkynningu frá Meta segir að hanskinn sé mjög efnilegur. Á undanförnum árum hafi teymið þróað framúrskarandi leiðir og lausnir til að halda vinnunni áfram.

Forsvarsmenn Facebook breyttu nafni fyrirtækisins í Meta að hluta til vegna aukinn áherslu þeirra á eitthvað sem kallað er „metaverse“ og hefur verið líkt við næstu kynslóð internetsins.

Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, hefur lýst „metaverse“ sem sýndarveruleikaumhverfi sem notendur geti farið inn í, í stað þess að horfa á það á skjá. Þar sem fólk getur „hist“ og leikið sér eða unnið með sýndarveruleikagleraugum, viðbótarveruleikagleraugum, snjallsímum eða öðrum tækjum.

Meta hefur lagt mikla áherslu á þróun sýndarveruleikatækni sem hófst árið 2014 þegar Meta keypti sýndarveruleikafyrirtækið Oculus.

Hanskarnir sem opinberaðir voru í dag myndu falla eins og flís við rass inn í þessa sviðsmynd sem Zuckerberg hefur lýst. Meta birti í dag myndband sem sýnir hvernig hanskarnir eiga að virka.

Þessir hanskar þyrftu að notast við mikinn fjölda smárra mótora, sem hreyfast í takt við það sem gerist í sýndarheimum. Til að draga úr hitamyndun datt verkfræðingum Reality Labs í hug að þróa nýja gerð mjúkra mótora sem geti breytt um lögun í takt við hvað verið er að gera með hanskanum.

Meta segir að á undanförnum tveimur árum hafi mikill árangur náðst í þeirri þróun sem byggi meðal annars á agnarsmáum loftdælum og flögum sem stýri loftþrýstingi.

Áhugasamir geta séð frekari og tæknilegri upplýsingar um hanskana hér á vef Meta.

Hér má sjá myndband sem sýnir hvernig hanskarnir eiga að nota loftdælur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×