Fögnuðu marki með því að fleygja sér í snjóinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. nóvember 2021 14:31 Cyle Larin fagnar seinna marki sínu fyrir Kanada gegn Mexíkó. afp/Jason Franson Kanadíska karlalandsliðið í fótbolta steig stórt skref í átt að því að tryggja sér sæti á HM í Katar með sigri á Mexíkó í gær, 2-1.
Kanadamenn hafa unnið þrjá leiki í röð og eru með eins stigs forskot á Bandaríkjamenn á toppi riðilsins í Norður- og Mið-Ameríku. Leikurinn í gær fór fram á Commonwelth leikvanginum í Edmonton. Aðstæður voru ekki þær bestu, skítkalt og ryðja þurfti snjó af vellinum fyrir leikinn. Kanadamenn fundu sig betur í kuldanum enda öllu vanari honum en Mexíkóar. Kanada náði forystunni í uppbótartíma fyrri hálfleik þegar Cyle Larin skoraði af stuttu færi eftir að Guillermo Ochoa varði skot Alistairs Johnston. Larin tvöfaldaði forskotið í upphafi seinni hálfleiks þegar hann skoraði sitt annað mark eftir aukaspyrnu Stephens Eustáquio. Kanadamenn fögnuðu markinu vel og innilega í snjónum á hlaupabrautinni eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan. Klippa: Kanada færist nær HM Héctor Herrera minnkaði muninn í 2-1 á lokamínútu leiksins og í uppbótartíma fengu Mexíkóar tvö færi til að jafna en Kanadamenn sluppu með skrekkinn. Með mörkunum tveimur í gær er Larin orðinn markahæstur í sögu kanadíska landsliðsins ásamt Dwayne De Rosario. Þeir hafa báðir skorað 22 landsliðsmörk. Helmingur landsliðsmarka Larins, sem leikur með Besiktas, hafa komið í undankeppni HM 2022. Kanada hefur aðeins einu sinni komist á HM, í Mexíkó 1986. Kanadamenn eru á góðri leið með að komast á HM í Katar á næsta ári og svo halda þeir HM 2026 ásamt Mexíkóum og Bandaríkjamönnum.
HM 2022 í Katar Mest lesið „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Fleiri fréttir Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Sjá meira