Innlent

Þaulskipulagðir úlpuþjófar lausir úr haldi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Mennirnir voru gripnir eftir að þeir gripu tvær úlpur úr verslun Bláa lónsins.
Mennirnir voru gripnir eftir að þeir gripu tvær úlpur úr verslun Bláa lónsins. Vísir/Vilhelm

Tveir erlendir ríkisborgarar sem grunaðir eru um þaulskipulagðan úlpuþjófnað úr Bláa lóninu hafa verið úrskurðaðir í farbann og eru þeir því lausir úr gæsluvarðhaldi.

Greint var frá því í október að tveir menn væru grunaðir um þjófnað á tveimur úlpum úr verslun Bláa lónsins. Úlpurnar kostuðu á annað hundruð þúsund króna hvor.

Í úrskurði Landsréttar er varpað nánari ljósi á aðferðir mannana sem virðast hafa verið þaulskipulagðar og útpældar.

Komust undan á hlaupum

Þar kemur fram að starfsmenn hafi staðið mennina að þjófnaðinum en þeim hafi tekist að komast burt á hlaupum. Lögregla var kölluð til og hafði hún hendur í hári mannanna í Hafnarfirði þar sem bíll þeirra var stöðvaður.

Lögreglan handtók mennina við Hafnarfjörð.Vísir/Vilhelm

Þar framvísaði annar þeirra svörtum ruslapoka sem í voru umræddar úlpur en mennirnir sáust koma þeim fyrir í bakpoka á öryggismyndavélum verslunarinnar.

Fundu sérútbúin vasa

Í farangursými bílsins fannst hliðartaska þar sem skorið hafði verið á botn töskunnar og í klæðningu var búið að koma fyrir „vasa“ gerðum úr álpappír og límbandi. Annar slíkur vasi fannst undir botni farangursgeymslunnar.

Segir í úrskurði Landsréttar að vasar af þessu tagi séu þekkt tæki í þjófnaðarmálum þar sem þeir komi í veg fyrir að þjófnarhlið virki sem skyldi. Þetta sé þekkt tæki í skipulagðri brotastarfsemi.

Eru ósamvinnuþýðir

Framkvæmd var húsleit í húsnæði mannanna í Reykjavík þar sem einnig fannst meint þýfi, fatnaður og afklipptir merkimiðar. Þá fannst einnig samskonar vasi og hafði áður fundist, gerður úr álpappír og límbandi.

Landsréttur taldi nægjanlegt að setja mennina í farbann.Vísir/Vilhelm

Við rannsókn málsins kom í ljós að fleiri mál bættust við eftir að verslanir yfirfóru eftirlitsmyndavélakerfi sín og umfjöllun um málið fór í fjölmiðla.

Hafa mennirnir tveir að játað sök í flestum málanna sem tengjast þeim en eru þeir ósamvinnuþýðir samkvæmt úrskurði Landsréttar, og og framburður þeirra misvísandi. Búið er að ákæra mennina en lögregla telur að meint brot þeirra séu þaulskipulögð og framkvæmd af ríkum ásetningi.

Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjaness til 20. desember næstkomandi. Úrskurðurinn var kærður til Landsréttar sem taldi að ekki væri hægt að láta mennina sæta gæsluvarðhaldi í lengur en einn mánuð. Voru mennirnir því úrskurðaðir í farbann. Mega þeir því ekki yfirgefa Ísland fyrir 20. desember næstkomandi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×