Kynlífstæki jafn sjálfsögð undir jólatréð og heimilistæki Losti.is 7. desember 2021 14:53 Þær Saga Lluvia Sigurðardóttir eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Losti.is og Birna Magnúsdóttir Gústafsson, kynfræðingur aðstoða við val á réttu jólagjöfinni. vilhelm Losti.is er vefverslun vikunnar á Vísi. Saga Lluvia Sigurðardóttir eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Losti.is brennur fyrir því að kynlíf og kynlífstæki verði sjálfsagt umræðuefni inni á öllum heimilum. Sjálf er hún fimm barna móðir og segir sérstaklega mikilvægt að ræða allt sem snýr að unaði feimnislaust við heimilisfólkið. Fræðsla er í fyrirrúmi hjá Losta og hafa unaðstengd námskeið vakið mikla athygli og slegið í gegn hjá fólki á öllum aldri. Birna Magnúsdóttir Gústafsson, kynfræðingur starfar hjá Losta og halda þær Saga úti öflugri fræðslu og skemmtun með kynlífstækin að vopni. Þær vilja meina að kynlífstæki séu jafn sjálfssögð í jólapakkann og hvert annað heimilistæki! Úrvalið er fjölbreytt og um að gera að fá faglega aðstoð. „Ég gjörsamlega elska þennan árstíma, það er líka ótrúlega gaman að hjálpa fólki við að finna réttu gjöfina. Búðin okkar er komin í jólabúninginn og hægt er að tylla sér í sófann með heitt kaffi og konfektmola meðan við veltum fyrir okkur bestu gjöfinni fyrir þann sem þú ert með í huga,” segir Saga en úrvalið á vefsíðu Losta er afar glæsilegt svo ef fólk týnist í frumskógi sogtækja, dildóa, múffa og hvað þetta heitir nú allt saman er best að mæta bara í verslunina í Borgartúni 3 og fá faglega og persónulega ráðgjöf hjá við val á réttu jólagjöfinni. Gullhringur sem er líka lítill titrari. En hvernig á eiginlega að velja kynlífstæki í jólagjöf? Þær Saga og Birna segja lang sniðugast að horfa í karakter þess sem á að fá gjöfina og velja eitthvað sniðugt út frá því. Ef viðkomandi er til dæmis algjör prinsessa á leðursvipa kannski ekki við en hjá djarfari dívum myndi svipan mögulega hitta beint í mark… eða var það öfugt? Til að auðvelda fólki aðeins valið hafa Saga og Birna búið til aðgengilega flokka undir liðnum Netverslun á vefsíðunni. Sá forvitni - Það er ekkert mál að velja dót handa þessari týpu, hann er opinn fyrir öllu og til í allskonar spennandi. Prinsessan - Þessi týpa vill láta dekra við sig og leiðist ekki dálítill glamúr og bling. Í þennan jólapakka er flott að velja vörur eins og nuddolíur, nuddkerti og mikið af fallegum og bleikum kynlífstækjum. Djarfa Dívan - Þessi týpa veit hvað hún vill og er til í að prófa eitthvað krassandi. Hér gætu vörur eins og fallegt hálsmen sem er einnig kraftmikill titrari átt vel við en hvað er djarfara en að ganga með kynlíftæki utan um hálsinn? Parafjör - Hjá Losta eru til allskyns vörur sem henta fyrir allskyns pör. Fyrir unglinginn - Í þessum flokki er að finna tæki sem henta fullkomnlega sem fyrsta tæki eða fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og prófa sig áfram.Skógjafir - Hér er að finna fjölbreytt úrval af fallegum og skemmtilegum tækjum, kremum og fylgihlutum. Hægt er að kíkja á úrvalið í vefversluninni og fá pantanir sendar heim eða láta senda pakkann beint heim til þess sem á að gleðja, pakkaðan inn í fallegan jólapappír og kláran undir tréð. Kynlíf Jól Heilsa Mest lesið One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Hvernig fer Óskarinn? Bíó og sjónvarp Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Lífið Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Tónlist Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Lífið „Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Matur Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár Áskorun Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Lífið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Lífið samstarf Fleiri fréttir Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira
Hægt er að kíkja á úrvalið í vefversluninni og fá pantanir sendar heim eða láta senda pakkann beint heim til þess sem á að gleðja, pakkaðan inn í fallegan jólapappír og kláran undir tréð.
Kynlíf Jól Heilsa Mest lesið One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Hvernig fer Óskarinn? Bíó og sjónvarp Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Lífið Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Tónlist Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Lífið „Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Matur Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár Áskorun Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Lífið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Lífið samstarf Fleiri fréttir Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira