Lífið

Kimmel sendi Lauf­eyju pylsusinnep eftir þáttinn

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Ekki fylgdi sögunni hvernig þáttastjórnandinn komst yfir hið rammíslenska pylsusinnep.
Ekki fylgdi sögunni hvernig þáttastjórnandinn komst yfir hið rammíslenska pylsusinnep. Instagram/Getty

Íslenska tónlistarkonan Laufey Lin Jónsdóttir fékk heldur betur sérstaka kveðju frá þáttastjórnandanum Jimmy Kimmel í gærkvöldi. Laufey birti kveðjuna á Instagram-síðu sinni en hún flutti lagið sitt Like The Movies í spjallþætti Kimmel fyrir rúmri viku. 

Laufey birti myndina á Instagram-síðu sinni í gær.Instagram

Laufey hefur notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum að undanförnu þar sem hún stundaði tónlistarnám í Berklee-tónlistarskólanum í Boston. Laufey fór að vekja athygli vestanhafs eftir að tónlistarkonan fræga Billie Eilish deildi flutningi hennar af lagi Billie, My Future, á Instagram haustið 2020.

Með kveðju Kimmel fylgdi rammíslenskt pylsusinnep frá SS. Og á kortinu stendur: „Laufey, takk fyrir að koma í þáttinn til okkar. Ég vona að þú kunnir að meta þessa sérstöku vöru að heiman.“ Laufey skrifar þá til baka að honum hafi svo sannarlega tekist að koma sér á óvart.

Eins og fyrr segir hefur Laufey notið mikilla vinsælda og hún er nú með tæplega 350 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum Tik Tok og 265 þúsund fylgjendur á Instagram. Á tónlistarveitunni Spotify hlusta hundruðir þúsunda á söngkonuna í hverjum mánuði. 

Bandaríska stórtímaritið Rolling Stone fjallaði um EP-plötu tónlistarkonunnar í maí í fyrra, þar sem kom fram að flutningur hennar væri bæði ljúfur og lipur. 

Hlusta má á stórkostlegan flutning Laufeyjar í þætti Kimmel hér að neðan.

 


Tengdar fréttir

Laufey Lin spilaði fyrir Jimmy Kimmel

Íslenska tónlistarkonan Laufey Lin Jónsdóttir flutti lagið sitt Like the Movies í spjallþætti Jimmy Kimmel í gærkvöldi.

Laufey lofuð í Rolling Stone

Fjallað er um fyrstu EP-plötuna sem tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir sendi frá sér á dögunum í bandaríska stórtímaritinu Rolling Stone. Fram kemur í umfjöllun Rolling Stone að mörg laganna á plötu Laufeyjar hafi hún samið á heimavistinni í Berklee-tónlistarskólanum í Boston, þar sem Laufey stundaði nám.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.