Lykillinn að góðum svefni finnst í sænskum skógi Vogue fyrir heimilið 31. janúar 2022 14:05 Útsýnið frá vinnustofu hönnuða Dorbien rúmanna en verksmiðjan stendur við vatnið Mälaren í þorpinu Kungsör í Svíþjóð. Dorbien rúmin fást nú á Íslandi. Dorbien „Við viljum að fólk hvílist og slaki á eins það gerir úti í náttúrunni og náttúran hefur mikil áhrif á alla okkar hönnun. Góður svefn og rúm er ekki sjálfkrafa sami hluturinn. Iðnaðurinn í kringum rúm er mjög stór en iðnaðurinn í kringum góðan svefn er tiltölulega lítill,“ segir Maarten Munhoz, framkvæmdastjóri sænska rúmafyrirtækisins Dorbien en fyrirtækið framleiðir hágæða rúm úr náttúrulegum hráefnum eftir sérpöntunum.
Framleiðslan fer fram í lítilli verksmiðju við vatnið Mälaren í þorpinu Kungsör og segir Maarten umhverfið skila sér beint inn á verkstæðið. „Umhverfið er okkur mjög mikilvægt. Yfir sumartímann eyðum við miklum tíma á vatninu og fáum einnig innblástur úr skóginum hér í kring en bærinn Kungsör er umlukinn þéttum skógi. Við viljum koma þessari tilfinningu til skila, að verða eitt með náttúrunni og reynum að túlka það gegnum rúmin. Okkar markmið er þægindi og lúxushvíld fyrir alla. Maarten Munhoz, framkvæmdastjóri sænska rúmafyrirtækisins Dorbien hlakkar til samstarfsins við Íslendinga. Ég hef alla mína þekkingu og reynslu frá Hästens en þar vann ég í yfir tuttugu ár. Fyrir þremur árum ákvað ég að stofna eigið fyrirtæki og með mér hjá Dorbien starfa nú tuttugu manns. Samanlagt búum við yfir 175 ára þekkingu á hönnun og framleiðslu lúxus-svefnlausna. Við erum lítið fyrirtæki sem gerir mjög góða hluti,“ segir Maarten enda hefur Dorbien vaxið jafnt og þétt. „Við seljum í Svíþjóð og til Danmerkur, Hollands, Belgíu og Spánar. Við erum nokkuð ný á markaðnum hér á Íslandi en við hófum samstarf við Vogue fyrir heimilið fyrir um hálfu ári. Við hlökkum mikið til að vinna með Íslendingum og teljum okkar vöru fela í sér nýja reynslu fyrir Íslendinga. Þörfin fyrir góða dýnu er mikil. Góður svefn er okkur svo mikilvægur og ég vil meina að rúmið sé jafnmikilvægt og góðir skór. Við eyðum oft 14 tímum á dag í sömu skónum og finnum vel fyrir því ef skórnir veita okkur ekki nægan stuðning. Eins eyðum við þriðjungi ævinnar í rúminu og heilsa okkar, bæði andleg og líkamleg, veltur á því að við sofum vel.“ Rúmin frá Dorbien fást í Vogue fyrir heimilið Dorbien rúmin eru handgerð og sænskur viður í öllu burðarvirki í rúmgrindinni. Mótorarnir koma frá Danmörku og talalay latex, ull og bómull er notuð í rúmdýnurnar. Í nokkrar gerðir eru einnig notuð hrosshár í dýnuna og allt gert til þess að loftunin sé sem best um rúmið. Dorbien framleiðir rúm eftir séróskum hvað varðar stífleika dýnunnar, áklæði, lit og fætur undir rúmgrindina og 20 ára ábyrgð er á rúminu. Maarten segir vandasamt að finna réttu dýnuna en með réttri leiðsögn og ráðleggingum ætti hver og einn að finna dýnuna sem skilar viðkomandi þeirri lúxusupplifun sem Dorbien stendur fyrir. „Það tekur tíma að finna rétta dýnu og á að taka tíma. Þetta er ekki eins og að kaupa í matinn. Við erum öll ólík og með ólíkar þarfir og Dorbien kemur til móts við fólk á öllum aldri. Hjá okkur er hægt að velja milli 12 ólíkra rúma og 12 ólíkra verðflokka en verðið er þó ekki sá meginþáttur sem horfa á í. Góð hvíld fyrir líkama og huga, gæði svefns, umhverfið og ending rúmsins er það sem skiptir máli,“ segir Maarten. Rúmin eru sérframleidd eftir óskum viðskiptavina
Svefn Hús og heimili Heilsa Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira