Klæðnaðurinn er auðvitað aðal aðdráttarafl sýninganna en vorum við í HI beauty með augun á förðunar lúkkunum. Við vorum heldur betur ekki sviknar með farðanirnar á tískupöllunum og misstum við nánast andann oft á tíðum.

Hér tókum við saman þau förðunarlúkk sem gripu okkur sterkast.
Dior Couture SS22
Yfir-förðunarfræðingurinn Peter Phillips lagði hér áherslu á augun en náði á sama tíma að gera þau mjög mjúk og látlaus með hvítum grafískum eyeliner undir augunum.
Schiaparelli Couture SS22
Glimmer tárin stálu sko heldur betur senunni og var það engin önnur en drottningin sjálf Pat McGrath sem var yfir-förðunarfræðingur sýningarinnar. Enn og aftur sýnir Pat McGrath snilld sína og hugrekki við að stíga út fyrir boxið.
Fendi Couture SS22
Fullkomin húð og steinar um allt andlit. Svo látlaust og djarft á sama tíma. Yfir-förðunarfræðingurinn Peter Philips var hér aftur á ferðinni og fékk hann innblástur sinn úr 80's sci-fi kvikmyndum og var hárið sleikt aftur í Joan of Arc stíl. Saman varð úr því fullkomin pörun milli förðunar og hárs og gátum við ekki hætt að stara á heildarútlitið.
Viktor & Rolf SS22 Haute Couture
Draping, djarfar glossy vinyl-varir og sultry augu. Við erum að elska þetta lúkk og skar það sig verulega út frá öðrum. Yfir-förðunarfræðingurinn Lucy Brigde sótti innblástur sinn í dracula og ''old Hollywood'' og kallar það svo sannarlega á okkur. Sjáiði líka neglurnar?
Chanel SS22 Haute Couture
Hjá Chanel sáum við dramatísk og dökk augu parað við kóral litaðar varir. Mjög mikið statement hjá Chanel og voru þau ein af þeim sem fóru í grafíska formið á augun. Áberandi, töff og greip þetta okkur strax!
Valentino SS22 Haute Couture
Við verðum að tala um Valentino. Fjaðraaugnhár, Lady Gaga Eyeliner og djarfar varir. Með þetta allt í gangi tókst þeim, á einhvern ótrúlegan hátt að para þetta allt saman og ná fram látlausum lúkkum. Valentino mætti með stæl!
Jean Paul Gaultier SS22 Haute Couture
Gólfsíðar fléttur eru mættar á tískupallana og við erum eiginlega að lifa fyrir það.
Módelin skörtuðu öll fullkomna húð með áherslu á annaðhvort varir eða augu og var mikil litadýrð oft á tíðum á augunum og augnskugginn dregin út og upp að gagnauga. Við elskuðum hvað módelin voru með mismunandi look!
Snyrtiborðið með HI beauty kemur út alla miðvikudaga. Í síðasta þætti heimsóttu þær Línu Birgittu og Gumma Kíró og er hægt að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan.