Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri er elsti samfellt starfandi grunnskóli á Íslandi. Hann hefur starfað óslitið frá 25. október árið 1852 þegar skólastarf hófst á Eyrarbakka og fagnar því 170 ára afmæli næsta haust. Nú er hins vegar komið babb í bátinn því mygla greindist í skólanum á Eyrarbakka fyrir nokkrum vikum og er hann því ónothæfur.
Og á mánudaginn var staðfest mygla í elsta hluta skólans á Stokkseyri. Um 150 nemendur eru í skólanum. Nemendur í á elsta stigi á Eyrarbakka fá nú sína kennslu í Samkomuhúsinu Stað og veitingahúsinu Rauða húsinu en á Stokkseyri er ástandi ekki jafn slæmt því þar er nýlegur skóli þar sem yngsta stigið sækir skóla.
Formaður Skipulags- og byggingarnefndar í Árborg og bæjarfulltrúi í meirihlutanum veit hvað gera skal.
„Já, ég er búin að leggja til nýja gamla hugmynd að það verði byggður skóli á milli þorpanna, nýr skóli og íþróttaaðstaða í samræmi við kröfur nútímans þannig að það sé hægt að kenna þar bæði íþróttir og sund,“ segir Sigurjón Vídalín Guðmundsson.
Heldur þú að það sé hljómgrunnur fyrir þessu ?
„Já, ég tel að svo sé.“
Skipaður verður starfshópur á vegum Árborgar um framtíð skólamála á ströndinni. Sigurjón segir að nýr skóli yrði byggður upp í áföngum en kostnaður við hann gæti orðið um einn milljarður. Skóflustunga yrði tekin af nýja skólanum eftir ár ef allt gengur upp.
En hvað með að flytja starfsemina á Selfoss?
„Nei, það kemur ekki til greina, það er bæði ekkert pláss fyrir nemendur á Selfossi en þar að auki er það gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið hér niður frá og bæði fyrir þorpin Eyrarbakka og Stokkseyri að hér sé öflugt skólastarf og öflugur skóli,“ segir Sigurjón Vídalín.