Innlent

Fiskskortur vegna rysjóttrar tíðar

Jakob Bjarnar skrifar
Sigfús Sigurðsson, Fúsi fisksali, segir að vont veður hafi óhjákvæmlega áhrif á framboðið í borðinu. En hann á þó alltaf fiskbita fyrir sína viðskiptavini.
Sigfús Sigurðsson, Fúsi fisksali, segir að vont veður hafi óhjákvæmlega áhrif á framboðið í borðinu. En hann á þó alltaf fiskbita fyrir sína viðskiptavini. Vísir/Sigurjón

Skip hafa ekki komist á miðin með reglubundnum hætti vegna óhagstæðs veðurfars. Þetta hefur meðal annars haft þau áhrif að framboð er ekki gott í fiskbúðum sem hefur svo áhrif á verð.

Sigfús Sigurðsson, fisksali og fyrrverandi atvinnumaður í handbolta, rekur einkar vinsæla fiskbúð – Fiskbúð Fúsa – í Skipholtinu. Hann segir takmarkað framboð samspil margra þátta en vond tíð leiki þar vissulega stórt hlutverk.

„Það hefur verið minna af fiski á markaði heldur en verið hefur venjulega. Minna framboð.“

Ekki margir á miðunum

Fúsi segir Covid, meiri útflutning sem datt niður í fyrra og svo veðráttan hafa þar áhrif. Hann kaupir sinn fisk á markaði eins og flestir fisksalar. Hann segir minna af fiski þegar viðrar illa, eðli máls samkvæmt.

„Það eru ekki margir á miðunum núna. Þetta eru litlir gluggar.“

Þetta hefur áhrif á framboð allra fisktegunda. Og það hefur svo áhrif á verðlagið þegar margir eru að berjast um fiskinn á markaði.

„Maður veigrar sér við að kaupa sumar tegundirnar. Flestir fisksalar vinna þetta þannig; þeir vilja ekki bjóða uppá eitthvað hjá sér í borðinu, sem þeir myndi ekki tíma að kaupa sjálfir,“ segir Fúsi og bregður fyrir sig íþróttalegu tungutaki: „Gæðalega og verðlagslega séð.“

Miklar verðhækkanir á þorski

Að sögn Fúsa hefur ýsan og þorskurinn hækkað allsvakalega í verði að undanförnu. „Á tímabili voru fisksalar að borga með þorski út úr búð. Ef þú hækkar verðið uppúr öllu valdi selst fiskurinn ekki.“ En Fúsi segir að þá snúist þetta um þjónustu og fisksalar reyna þá að ná inn tapinu á öðrum tegundum og/eða vonast til að aðstæður breytist.

Verð til fisksala ræðst á markaði. Og þegar lítið er um fisk rýkur verðið upp. Fiskur til útflutnings er einnig keyptur á markaði, frystur og hausaður og þá skiptir gengi krónunnar eðlilega miklu máli. Í haust rauk meðalverð á þorskílói upp í 809 krónur en hafði verið í um 380, sem er rúm 200 prósenta hækkun á markaði, sem augljóslega hefur áhrif á verðlag til íslenskra neytenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×