Leita til Ólafs Elíassonar um hönnun minnisvarða um Heimaeyjargosið Atli Ísleifsson skrifar 23. febrúar 2022 11:48 Frá Heimaey. Heimaeyjargosið hófst 23. janúar 1973 og var lýst lokið þann 3. júlí sama ár. Getty Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita tvær milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til Vestmannaeyjabæjar vegna hugmyndavinnu fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey. Samningur hefur verið gerður við Stúdíó Ólafs Elíassonar um hugmyndavinnuna.
Sagt er frá þessu á vef forsætisráðuneytisins, en á næsta ári verða liðin fimmtíu ár frá eldgosinu í Heimaey en gosið stóð frá 23. janúar til 3. júlí 1973. „Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, undirrituðu í september sl., viljayfirlýsingu um samvinnu og undirbúning viðburða í tilefni tímamótanna og er gerð minnisvarða þar á meðal. Forsætisráðherra hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um skipun nefndar vegna undirbúnings kaupa og uppsetningu minnisvarðans. Í nefndinni munu auk fulltrúa forsætisráðherra verða skipaðir tveir fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og tveir fulltrúar Alþingis. Auk þess hefur bæjarráð og bæjarstjórn Vestmannaeyja fjallað um viðburði í tengslum við þessi tímamót. Ólafur Elíasson hefur þegar heimsótt Vestmannaeyjar til að skoða aðstæður en hann hafði það á orði að erlend grein um hraunkælinguna sem bjargaði innsiglingunni hafi vakið áhuga hans á verkefninu. Auk gerðar minnisvarðans verður tímamótanna minnst með málstofu um eldgosið í Eyjum og gosið í Surtsey. Þá verður sumarfundur norrænu forsætisráðherranna haldinn í Vestmannaeyjum sumarið 2023, en myndarlegur stuðningur barst frá Norðurlöndunum vegna uppbyggingarinnar í kjölfar gossins, bæði í formi fjárframlags og með ýmsum öðrum hætti,“ segir í tilkynningunni.
Vestmannaeyjar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Styttur og útilistaverk Heimaeyjargosið 1973 Mest lesið Laufey í banastuði í Reykjavík Lífið „Þú gleymir fólki sem þú hefur elskað allt þitt líf“ Lífið Eins söguleg og skáldsaga getur orðið Lífið Nilli og Sóley eignuðust dóttur Lífið Munir safnsins geyma merkilega sögu Lífið Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Tíska og hönnun Myndaveisla frá stjörnufans og gleðinni í Víðidal Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Emmsjé Gauti laumaði sér á Landsmót fyrir tónlistarmyndband Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira