Styttur og útilistaverk

Beinir spjótum sínum að Smithsonian og „sögufölsunum“
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út enn eina forsetatilskipunina þar sem hann meðal annars felur varaforsetanum J.D. Vance að uppræta „and-bandaríska hugmyndafræði“ á yfir tuttugu söfnum og rannsóknarstofnunum Smithsonian.

Rif eftir Önnu Júlíu sigraði og verður á Héðinsreit
Vinningstillagan í samkeppni um útilistaverk í Vesturvin á Héðinsreit í Vesturbæ Reykjavík er verkið Rif eftir Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur.

Heggur ísskúlptúra í bílskúrnum
Fyrirtækið Reykjavík Ice sérhæfir sig í að búa til skúlptúra úr ís. Ottó Magnússon rekur fyrirtækið og býr til alla skúlptúrana sjálfur í bílskúrnum heima hjá sér. Fyrsta skref er að búa til blokkirnar sem hann gerir skúlptúrana síðan úr.

Vilja ekki sjá listaverk á Eldfelli
Fjöldi Eyjamanna hefur skrifað undir undirskriftarlista þar sem áformum um gerð listaverks á Eldfelli er mótmælt.

Kannast ekki við áform um brjóstmynd úr bronsi
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, segir það aldrei hafa komið til tals og hvað þá til framkvæmdar að láta gera brjóstmynd úr bronsi af sjálfum sér til að skreyta Ráðhús Reykjavíkur.

Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles
Tveir bandarískir listamann hafa framkvæmd gjörning við höggverk Nínu Sæmundsson í MacArthur almenningsgarðinum í Los Angeles. Listamennirnir hafa bætt við höggverkið, sem er af guðinum Prómeþeifi, pípu til að reykja vímuefni með.

Skiltið í allt öðrum búningi en lagt var upp með
Hugmynd sem bar sigur úr býtum í verkefninu Hverfið mitt er nú orðin að skilti í Breiðholtinu en þó í allt öðrum búningi og á öðrum stað en hugmyndasmiðurinn hafði séð fyrir sér

Fjarlægja útilistaverkið
Til stendur að fjarlægja útilistaverkið Flæði eftir Kristin E. Hrafnsson sem stendur á lóð Aðalgötu 14 í Ólafsfirði.

Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar
Um 1.200 komu saman í Viðey í kvöld til að fylgjast með tendrun friðarsúlunnar. Kveikt var á friðarsúlunni í kvöld í 18. sinn.

Geitin er risin fyrr en nokkru sinni
IKEA-geitin er risin í Kauptúni og er sérstaklega snemma á ferðinni. Hún hefur undanfarin ár verið tendruð um miðjan október en er nú komin á sinn stað nokkrum dögum fyrr.

Umdeild stytta af drottningu sögð líkjast grínkarakter
Ný bronsstytta af Elísabetu annarri Bretadrottningu hefur vakið mikil viðbrögð meðal íbúa á Norður Írlandi. Sumir segja styttuna móðgandi þar sem hún líkist grínkarakter frekar en drottningunni sjálfri.

Hvetja fleiri til að láta mála vegglistaverk
Búið er að kortleggja staðsetningu yfir 160 vegglistaverka í Reykjavík á nýju korti borgar. Listunnendur vilja sjá fleiri verk í úthverfum og utan höfuðborgarsvæðis.

Hefja gagngerar endurbætur á Friðarsúlunni í Viðey
Framkvæmdir við gagngerar endurbætur á Friðarsúlu í Viðey eru hafnar. Skúli Helgason, formaður menningar-, íþrótta og tómstundaráðs, segir í samtali við fréttastofu að Friðarsúlan sé þörf áminning um friðarboðskap, sérstaklega vegna þróun heimsmála undanfarin ár.

Veggjalist blómstrar í Reykjavík sem aldrei fyrr
Veggjalist blómstrar í Reykjavík sem aldrei fyrr. Sífellt fæðast ný verk og við höfum tekið yfir 160 vegglistaverk saman á kort svo auðveldara sé að finna verkin og njóta þeirra.

Styttur af Bakkabræðrum afhjúpaðar á Dalvík
Styttur af Bakkabræðrunum þeim Gísla, Eiríki og Helga voru afhjúpaðar í morgun á göngustíg ofan Dalvíkur af nemendum Dalvíkurskóla. Ástæðan er sú að bræðurnir voru frá bænum Bakka í Svarfaðardal en skemmtilegu sögurnar af þeim bræðrum þekkja flestir.

Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum
Stærsta skeifa heims vekur nú mikla athygli gesta í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal, en í skeifunni eru 2.852 notaðar skeifur, sem hafa verið undir hestum út um allt land í gegnum árin.

97 ára og gerir við dvergastyttur og málar þær í Eyjum
Eitt það allra skemmtilegasta sem Palli í Mörk eins og hann er alltaf kallaður í Vestmannaeyjum gerir er að mála og laga dvergastyttur fyrir Eyjamenn en Palli er rétt að verða 98 ára. Og Palli segist að sjálfsögðu ætla á þjóðhátíð eins og hann hefur alltaf gert.

Veggmynd Guðsteins fer ekki fet
Byrjað er að mála yfir veggmynd sem staðið hefur við gömlu verslun Guðsteins Eyjólfssonar í miðbæ Reykjavíkur í áratugi. Mynd af málara við störf hefur strokið íbúum í miðbænum öfugt, sem mótmæltu gjörningnum á Facebook. Verslunareigandi segir að verið sé að sinna viðhaldi, og myndin verði máluð á nýjan leik.

Bæjarstjórn Garðabæjar ætlar að reisa styttu af kettinum Sushi
Bæjarstjórn Garðabæjar ætlar að láta reisa styttu af frægasta ketti bæjarins, Sushi, sem mun því sem fréttastofa kemst næst brjóta blað í sögunni og verða fyrsti íslenski kötturinn sem fær reistan skúlptúr sér til heiðurs. Kötturinn er fastagestur í Hagkaup og sækir kennslustundir í Garðaskóla.

Styrkja kaup á sérhönnuðu listaverki Ólafs Elíassonar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri undirrituðu í dag samning á milli ráðuneytisins og Vestmanneyjarbæjar sem tryggir verkefnastyrk vegna aðkomu að listaverki eftir Ólaf Elíasson. Styrkurinn hljóðar upp á 50 milljónir.

Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti
Menningar- og íþróttaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hafinn verði undirbúningur að endurgerð gamla vatnspóstsins í Aðalstræti með það að markmiði að koma honum í viðunandi horf. Vatnspósturinn hefur drabbast verulega niður síðustu ár.

Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson
Viðgerð er hafin á útlistaverkinu Útlögum sem var skemmt í gær. Það verður bæði kostnaðarsamt og tímafrekt að gera við verkið að sögn deildarstjóra Listasafns Reykjavíkur. Þetta er í annað skipti á nokkrum árum sem útilistaverk eftir Einar Jónsson fær slíka útreið.

Niðri fyrir vegna Útlaganna
Egill Helgason, fjölmiðlamaður og íbúi í miðborg Reykjavíkur, er á meðal þeirra sem fussar og sveiar yfir óvæntri og óútskýrðri gullhúðun á styttunni Útlagar við Melatorg í Reykjavík. Sagnfræðingur bendir á að málningin muni veðrast strax af.

Útlagar spreyjaðir gylltir
Útlagar, stytta Einars Jónssonar myndhöggvara, á horni Suðurgötu og Hringbrautar hefur orðið fyrir óvæntum breytingum. Einhver óprúttinn aðili hefur málað styttuna gyllta með málningu eða spreybrúsa.

Ætla að vera aðeins „hógværari“ en Ölfus við gerð bæjarskiltis
Til stendur að reisa nokkur skilti við bæjarmörk Hveragerðisbæjar á þessu ári. Í minnisblaði menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar bæjarins er lagt til að vera ögn „hógværari“ en nágrannarnir í Ölfusi við gerð skiltanna.

Stærðarinnar listaverk komið á sinn stað
Stærðarinnar listaverk er risið við aðalinngang Smiðju, nýrrar skrifstofubyggingar Alþingis.

„Svona ýkta skemmdarfýsn er erfitt að skilja“
Útilistaverk í Grasagarðinum var brotið í sundur og bútunum kastað í tjörn aðeins þremur dögum eftir uppsetningu þess. Myndlistarmaðurinn segir grátlegt að sjá margra mánaða vinnu gerða engu og telur hóp hafa verið að verki. Hann vonast þó til að verkið rísi á ný annars staðar.

„Þetta er ekki beint það sem fólk kaus“
Breiðhyltingur, sem átti tillögu að skilti sem býður fólk velkomið í hverfið í hugmyndakeppninni Hverfið mitt í fyrra og var samþykkt, segir miður að endanleg hönnun skiltisins sé ekki í anda Breiðholtsins. Allan karakter vanti í útlit þess.

Eftirlýst í Rússlandi vegna sovéskra minnisvarða
Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands. Taimar Peterkop, nokkurskonar ráðuneytisstjóri ríkisstjórnar Eistlands er einnig eftirlýstur í Rússlandi en talskona utanríkisráðuneytis Rússlands segir þau eftirlýst vegna niðurrifs á sovéskum minnisvörðum.

Tímar útlagans
Skaðinn er skeður, menn og vélar mættar á staðinn, fjarlægja styttu, fjarlægja tjöld. En fátt er svo með öllu illt. Nú vantar nýtt minnismerki í staðinn.