Lífið

Hjálmar fer á kostum í stiklu fyrir nýja kvikmynd um dómara

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjálmar Örn á leiðinni í kvikmyndahús í Þýskalandi, eða líklega ekki.
Hjálmar Örn á leiðinni í kvikmyndahús í Þýskalandi, eða líklega ekki.

Hjálmar Örn Jóhannsson fer á kostum í atriði í síðasta þætti af Þeim tveimur á Stöð 2 Sport og Stöð 2.

Það fer hann mikinn í stiklu fyrir nýja kvikmynd, Saga dómarans - Hertoginn. Dómari sem hefur greinilega gengið í gegnum ýmislegt í einkalífinu. Eva Ruza fer einnig mikinn í atriðinu.

Þá má telja líklegt að verið sé að grínast með kafla úr bókinni Rauði baróninn, saga umdeildasta knattspyrnudómara Íslandssögunnar sem er frásögn knattspyrnudómarans Garðars Arnar Hinrikssonar.

Klippa: Hjálmar fer á kostum í stiklu fyrir nýja kvikmynd um dómara





Fleiri fréttir

Sjá meira


×